Fréttasafn

Stefna okkar er að halda almenningi, stjórnvöldum og starfsfólki vel upplýstu um starfsemina og stuðla þannig að jákvæðri og sterkri ímynd Landhelgisgæslunnar í þjóðfélaginu.


Fréttayfirlit


Fumlaus viðbrögð við háska æfð - 28.2.2019

20190226_111832

Á dögunum fór fram árlegt árlegt endurmenntunarnámskeið sem varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sækja en þar var farið yfir grunnatriði í óvissu-, háska- og neyðarstigum hjá flugförum innan björgunarsvæðisins. 

Konudagurinn er í dag - 24.2.2019

IMG_0908

Landhelgisgæslan tók forskot á sæluna og hélt upp á konudaginn fyrir helgi. Við hjá Landhelgisgæslunni erum afar heppin að eiga svona frábærar samstarfskonur sem áttu það svo sannarlega skilið að hefja helgarfríið með smá dekri og óvæntum glaðningi. Kæru konur, innilega til hamingju með konudaginn.

TF-SYN sótti tvo göngumenn - 23.2.2019

TF-SYN_1550946392278

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á fimmta tímanum í dag neyðarkall frá tveimur erlendum göngumönnum á Tungnaárjökli. TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar, og björgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru þegar í stað kallaðar út. Mennirnir höfðu meðferðis neyðarsendi sem þeir virkjuðu en þeir voru orðnir kaldir og hraktir. Þyrla Landhelgisgæslunnar tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan 17 og rúmri klukkustund síðar voru mennirnir komnir um borð í þyrluna. TF-SYN er nú á leið með göngumennina til Reykjavíkur.

Óvenju há ölduhæð - 20.2.2019

Kennialda

Landhelgisgæslan hefur fengið þær upplýsingar frá Veðurstofu Íslands að von sé á óvenju mikilli ölduhæð vegna djúpu lægðarinnar sem nálgast nú landið.

Varað við óvenju hárri sjávarstöðu - 20.2.2019

Unspecified_1550677527731

Landhelgisgæslan vekur athygli á óvenju hárri sjávarstöðu í dag og næstu daga, en stórstreymt er þessa dagana. Samkvæmt útreiknuðum sjávarfallaspám sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar Landhelgisgæslunnar verður árdegisflóð í Reykjavík í fyrramálið 4,5 metrar en til samanburðar þá er sjávarhæð á meðalstórstraumsflóði 4,0 metrar.

Fengu viðurkenningu og heiðursmerki fyrir mannúðarstörf í Írak - 20.2.2019

IMG_7239

Jónas Karl Þorvaldsson og Sverrir Harðarson, starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingarsviðs Landhelgisgæslunnar, fengu í vikunni viðurkenningu og heiðursmerki Atlantshafsbandalagsins fyrir þátttöku í mannúðarverkefni bandalagsins í Írak. Hlutverk þeirra var að sinna þjálfun innlendra sprengjusérfræðinga og auka færni þeirra við sprengjueyðingu.

Pompeo kynnti sér störf Gæslunnar - 15.2.2019

_S4I2009

Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fékk kynningu á stjórnstöð Nato á Keflavíkurflugvelli, sem rekin er af Landhelgisgæslunni, áður en hann fór af landi brott síðdegis í dag. Georg Kr. Lárusson og Jón B. Guðnason kynntu starfsemina á öryggissvæðinu en með í för voru einnig Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Geir H. Haarde, sendiherra Íslands í Washington.

Tekið á móti Pompeo - 15.2.2019

IMG_0840

Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lenti á Keflavíkurflugvelli á tólfta tímanum. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri varnarmálasviðs, Hannes Heimisson, prótókóllstjóri utanríkisráðuneytisins og Jill M. Esposito, staðgengill sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, tóku á móti utanríkisráðherranum við komuna til landsins.

12000 hestafla slökkvibyssur prófaðar - 14.2.2019

Thor-slokkvibyssur
Varðskipið Þór er afar vel tækjum búið. Þar er meðal annars að finna svokallaðar FiFi slökkvibyssur sem eru ákaflega afkastamiklar en alls geta þær dælt um 3200 rúmmetrum af sjó á klukkustund. Áhöfnin á varðskipinu hélt æfingu í gær þar sem búnaðurinn var prófaður. Tilgangurinn með æfingunni var að viðhalda þjálfun áhafnarinnar og kanna virkni búnaðarins.

Óðinn gamli fær olíu - 13.2.2019

Ljosmynd-3_1550059918136

Varðskipið Óðinn er starfsmönnum Landhelgisgæslunnar kært enda þjónaði það þjóðinni og stofnuninni í tæpa hálfa öld. Skipið á sér langa og merkilega sögu en það hefur verið hluti af Sjóminjasafninu frá árinu 2008. Skipinu er vel við haldið en á dögunum tóku nokkrir fyrrverandi skipverjar á Óðni sig til og settu afgangsolíu af varðskipinu Tý yfir á vélar gamla varðskipsins. 

112 dagurinn í dag - 11.2.2019

112mynd-1200x630

112-dagurinn er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að öryggismálum heimilisins. Aðstandendur dagsins fræða almenning um hvernig má draga úr hættu á slysum og öðrum áföllum á heimilum og hvernig bregðast á við slíkum atvikum. Þetta er gert meðal annars á samfélagsmiðlum og í 112-blaðinu sem fylgir Fréttablaðinu í dag. 

Sigraði í norrænni ljósmyndakeppni - 8.2.2019

Gomul-visindi-og-ny

Guðmundur St. Valdimarsson, bátsmaður á varðskipinu Tý, varð hlutskarpastur í ljósmyndakeppni sjómanna á Norðurlöndum. Þetta er í annað sinn sem Guðmundur sigrar í keppninni.

Þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði að konu í Skaftafelli - 8.2.2019

TF-LIF_1548085504203

TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á sjöunda tímanum í gær til að aðstoða við leit að konu í Skaftafelli. Þyrla Landhelgisgæslunnar var komin í Skaftafell um klukkan 20:00 e í Skaftafell og hóf þá leit ásamt björgunarsveitarmönnum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og lögreglu.

Farþegabátur fór ítrekað út fyrir leyfilegt farsvið - 7.2.2019

_33A8672

Borið hefur á því að skipstjórar farþegaskipa hafi ekki virt leyfilegt farsvið sitt og hefur Landhelgisgæslan þurft að áminna og kæra skipstjóra. Varðstjórar í stjórnstöð hafa í vikunni þurft að hafa ítrekuð afskipti af farþegabáti.

TF-LIF sótti konu sem féll af klettum - 4.2.2019

51097685_2319580331609249_8584325579459788800_n
TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, flutti konu á Landspítalann í Fossvogi sem féll í klettum við Þorlákshöfn í hádeginu í gær. Björgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, lögregla og Brunavarnir Árnessýslu voru kallaðar út vegna málsins.

Samningur við Breta endurnýjaður - 1.2.2019

IMG_7204_1549284338242

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar og Tim Lowe, aðmíráll og yfirmaður UKHO, bresku sjómælinganna, skrifuðu á dögunum undir endurnýjaðan tvíhliða samning um áframhaldandi samstarf á sviði sjókortagerðar. Samningurinn tekur m.a. á skiptum á upplýsingum og reynslu er snýr að útgáfu sjókorta.

Síða 1 af 2