Fréttayfirlit: mars 2004 (Síða 2)

Áhöfn TF-LIF bjargaði 16 manna áhöfn Baldvins Þorsteinssonar EA-10 eftir að skipið strandaði nærri Skarðsfjöruvita

Þriðjudagur 9. mars 2004.   Áhöfn TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar bjargaði í morgun 16 manna áhöfn loðnuskipsins Baldvins Þorsteinssonar EA-10 frá Akureyri sem strandaði um 3 sjómílur norð-austur af Skarðsfjöruvita.   Skipstjórinn hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 3:12 í nótt og lét vita að skipið væri með nótina í skrúfunni um 1.8 sml. undan landi.  Um borð var 16 manna áhöfn.  Þá var loðnuskipið  Bjarni Ólafsson AK-70 að reyna að koma línu yfir í Baldvin.  Veður var SSA 7-11 metrar á sek. og nokkuð brim við ströndina. Fimm önnur skip voru innan við 1 sjómílu frá Baldvin Þorsteinssyni.   Um kl. 3:22 hafði varðstjóri í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar aftur haft samband við skipið og fékk þær upplýsingar að illa gengi að koma línu á milli skipanna.    Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 3:28 eftir samráð við yfirmann gæsluframkvæmda.  Í framhaldinu af því var varðskipið Týr, Tilkynningarskylda íslenskra skipa, strandstöðvar  og Varnarliðið upplýst um ástandið.   Aftur var haft samband frá skipinu kl. 3:46 og látið vita að lína hefði slitnað milli skipanna og verið væri að reyna aftur.  Tilkynnt var stuttu síðar að hliðarskrúfur kæmu ekki að gagni og ekkert gengi að ná línu á milli skipanna.    Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kom þessum upplýsingum á framfæri við Varnarliðið, Tilkynningarskylduna og strandarstöðvar.  Óskað var eftir að Varnarliðið sendi þyrlu til aðstoðar og Neyðarlínan beðin um að koma boðum til lögreglu.     Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli kl. 4:26.  Veður var það slæmt á Keflavíkurflugvelli að þyrla Varnarliðsins gat ekki haldið strax af stað.  Skipið hafði þá tekið niðri.  Haft var samband við útgerð skipsins og upplýst um ástand og horfur.   Um kl. 4:35 hafði skipstjóri Baldvins Þorsteinssonar samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og lét vita að taugin milli skipanna hefði slitnað.  Skipstjórinn hafði aftur samband kl. 4:48 og gaf upp staðsetningu og var þeim upplýsingum komið áfram til viðkomandi aðila, Tilkynningarskylduna, varðskipið Tý og TF-LIF.   Skipstjórinn var í stöðugu sambandi við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar meðan á þessu stóð og ræddi leiðir til að verja skipið og tryggja öryggi áhafnar sem best. Skipstjóranum var ráðlagt að skipverjar færu ekki í gúmmíbáta við þessar aðstæður. Lagt var til að toghlerar skipsins yrðu settir út til að stýra skipinu gegnum brimgarðinn og láta bæði akkerin falla þegar komið væri í gegnum hann og um leið slaka á toghlerunum þannig að skipið snérist upp í sjó og vind til að verjast áföllum.   Skipstjórinn tilkynnti kl. 5 að akkeri hefðu verið látin falla og skipið væri komið inn fyrir ytri brimgarðinn.   Þessum upplýsingum var komið á framfæri við Tilkynningarskylduna og aðra hlutaðeigandi aðila.   Um kl. 5:13 heyrðist á rás 16 gegnum fjarhlustun frá strandastöðvunum að Baldvin Þorsteinsson hefði stöðvast og ekki bryti mikið á honum.   Varnarliðið hafði samband kl. 5:30 og tilkynnti að þyrla væri að fara af stað en yrði væntanlega ekki á staðnum fyrr en kl. 7:30 í fyrsta lagi.   Varðskipið Týr tilkynnti kl. 5:39 að TF-LIF væri hjá Skógum og yrði væntanlega komin á staðinn  kl. 6:10.   Áhöfn Baldvins Þorsteinssonar var þá látin vita um áætlaðan komutíma þyrlunnar.  Þá voru bæði akkeri skipsins og hlerar úti.   Fyrstu björgunarsveitir voru komnar á staðinn kl. 6.  Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LIF var komin á strandstað kl. 6:10 og var þá hafist var handa við að koma áhöfninni úr skipinu og var búið að bjarga öllum skipverjum frá borði kl. 7.  Þyrlan flaug síðan til Víkur með áhöfnina fyrir utan skipstjóra og fjóra skipverja sem urðu eftir á strandstað ásamt björgunarsveitarmönnum.    Í áhöfn þyrlunnar eru Hafsteinn Heiðarsson flugstjóri, Sigurður Heiðar Wiium flugmaður, Þengill Oddsson læknir, Auðunn Kristinsson stýrimaður/sigmaður og Jón Erlendsson flugvirki/spilmaður.   Varðskip er væntanlegt á strandstað um hádegisbilið.   Baldvin Þorsteinsson EA-10 er gerður út af Samherja á Akureyri.  Skipið er 2968 brúttótonn, smíðað í Flekkefjord í Noregi árið 1994.     Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlafulltrúi   P.S. Fréttatilkynning þessi var endurskoðuð og henni breytt samkvæmt upplýsingum stjórnstöðvar eftir að formleg skýrsla hennar hafði verið gefin út enda voru ekki allar upplýsingar fyrirliggjandi í skriflegu formi er upphafleg fréttatilkynning var gefin út kl. 7 um morguninn.

Myndir frá strandstað Baldvins Þorsteinssonar EA-10

Þriðjudagur 9. mars 2003. Meðfylgjandi myndir tók Jón Erlendsson flugvirki og spilmaður í áhöfn TF-LIF af strandstað Baldvins Þorsteinssonar EA-10 um tvöleytið í dag. TF-LIF var þá á leið til Reykjavíkur eftir vel heppnaða björgun áhafnar skipsins.      

Heimkoma áhafnar TF-LIF eftir vel heppnaða björgunaraðgerð

Þriðjudagur 9. mars 2004.   Á meðfylgjandi mynd má sjá áhöfn TF-LIF eftir heimkomuna í dag eftir björgun áhafnar Baldvins Þorsteinssonar EA-10 í morgun.  Eins og kunnugt er var 16 manns bjargað úr skipinu sem strandaði í grennd við Skarðsfjöruvita.      Í áhöfninni eru frá vinstri: 1. Hafsteinn Heiðarsson flugstjóri, Jón Erlendsson flugvirki/spilmaður, Auðunn F. Kristinsson stýrimaður/sigmaður, Sigurður Heiðar Wiium flugmaður og Þengill Oddsson læknir.     Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri var mættur út á flugvöll til að taka á móti áhöfninni og þakkaði henni fyrir vel heppnaða björgunaraðgerð.  Á myndinni heilsar hann nafna sínum Heiðarssyni, flugstjóra TF-LIF.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.  

Nýr flugstjóri þjálfaður

Miðvikudagur 5. mars 2004. Nýlega tók áhöfn björgunarbátsins Ásgríms S. Björnssonar, sem er í eigu Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, þátt í æfingu með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-SIF.  Tilgangur æfingarinnar var að þjálfa Sigurð Ásgeirsson verðandi flugstjóra í flugdeild Landhelgisgæslunnar í aðflugi að skipum og hífingum úr þeim.  Meðfylgjandi er myndasyrpa sem tekin var á meðan á æfingunni stóð.  Það var Einar Örn Jónsson í áhöfn björgunarbátsins sem tók myndirnar.  Á einni myndinni má sjá Sigurð Ásgeirsson flugstjóra í flugstjórasætinu en hann naut leiðsagnar Benónýs Ásgrímssonar yfirflugstjóra.  Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr. Mynd: Áhöfn björgunarbátsins. Þar á meðal er Ásgrímur Ásgrímsson deildarstjóri sjómælingadeildar hjá Landhelgisgæslunni en hann er skipstjóri björgunarbátsins í frítíma sínum.     Mynd: Sigurður Ásgeirsson einbeittur í flugstjórasætinu. Mynd: Magnús Örn Einarsson skipstjórnarmaður hjá Landhelgisgæslunni og sigmaður. Mynd: Björn Haukur Pálsson skipstjórnarmaður hjá Landhelgisgæslunni og Borgþór Hjörvarsson sem er í áhöfn björgunarskipsins.

Fimmtán loðnuskip að veiðum undan Ingólfshöfða

Föstudagur 5. mars 2004. TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, fór í eftirlitsflug yfir loðnumiðin í gær. Alls voru fimmtán skip á miðunum undan Ingólfshöfða, 11 íslensk og 4 færeysk. Sjá myndir sem Tómas Helgason flugstjóri TF-SYN tók af skipunum. Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.    

Nýjar útgáfur hafnakorta hjá Sjómælingum Íslands

Föstudagur 5. mars 2004.   Eins og fram hefur komið hefur Landhelgisgæslan haft afnot af fjölgeislamæli frá hafrannsóknarstofnun bandaríska sjóhersins undanfarin sumur og eru afurðir mælinga með honum að skila sér frá Sjómælingum Íslands, sem eru deild innan Landhelgisgæslunnar.   Samkvæmt upplýsingum Árna Þórs Vésteinssonar deildarstjóra kortadeildar hafa verið gerðar nýjar útgáfur af 5 hafnakortum.  Í öllum höfnunum höfðu orðið breytingar vegna framkvæmda, annað hvort vegna nýrra hafnarmannvirkja eða breytinga á dýpi eða hvoru tveggja.   Hafnakortið af Grindavík var uppfært í samræmi við mælingar sem gerðar voru bæði í innsiglingunni og höfninni með fjölgeislamæli. Á liðnum árum hafa verið miklar framkvæmdir í Grindavík, nýir brimvarnargarðar byggðir og ný innsiglingarrenna gerð. Á Sauðárkróki var búið að lengja viðlegukant og einnig hafði Siglingastofnun mælt dýpi í höfninni. Sandburður er viðvarandi vandamál í innsiglingunni og samkvæmt nýjustu mælingum hefur grynnkað eitthvað þess vegna.   Þá hafa hafnakortin af Húsavík, Raufarhöfn og Þórshöfn verið uppfærð í samræmi við fjölgeislamælingar. Dæmi um breytingar á hafnakortunum sem af því leiðir eru að á Húsavík fannst ekki grynning sem í kortinu var sýnd skammt suðaustan innsiglingarlínu og hún því tekin út.   Á Raufarhöfn fannst hinsvegar grynning sömuleiðis skammt frá innsiglingarlínu og á Þórshöfn komu í ljós skemmdir á bryggju eins og skýrt var frá í fjölmiðlum nýverið.  Vinna við tvær nýjar útgáfur til viðbótar stendur yfir en það eru kort af höfnunum í Sandgerði og Vopnafirði.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.     Mynd: Ný útgáfa hafnakorts af Grindavík  

Sjómannaskólanemar heimsækja varðskipið Tý

Föstudagur 5. mars 2003.    Nemendur Sjómannaskólans (skipstjórnar- og vélstjórnarnemar) heimsóttu varðskipið Tý 3. og 4. mars sl. og kynntu sér búnað og tæki um borð undir leiðsögn stýrimanna Týs.   Sjá meðfylgjandi myndir sem Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður á varðskipinu tók við það tilefni.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.       Mynd: Nemendur skoða stjórnrúm aðalvéla um borð í Tý undir leiðsögn Björns Ingvarssonar vélstjóra.     Mynd: Gunnar Örn stýrimaður á Tý fræðir nemendur um búnað í brúnni.    

Fjölgeislamælir nýtist við að kanna skemmdir á hafnarmannvirkjum

Miðvikudagur 3. mars 2004.   Hafrannsóknastofnun bandaríska sjóhersins hefur enn eitt árið samþykkt að veita Landhelgisgæslunni afnot af fjölgeislamæli til notkunar við mælingar næsta sumar.  Fjölgeislamælirinn er kominn til landsins og verður settur í sjómælingabátinn Baldur þegar hann fer í slipp eftir páska.   Fjölgeislamælirinn hefur sannað gildi sitt á margan hátt.  Hann gefur heildstæða mynd af hafsbotninum ólíkt eingeislamæli sem hingað til hefur verið notaður.    Við úrvinnslu mælinga sem gerðar voru með fjölgeislamæli í höfninni á Þórshöfn sl. sumar kom í ljós að jarðvegur hefur hrunið undan innra bryggjuhorni á hafskipabryggjunni á Þórshöfn.  Ómögulegt er að segja hvaða afleiðingar það hefði haft ef skemmdin hefði ekki komið í ljós strax en nú gefst möguleiki á að lagfæra hana og koma í veg fyrir enn meira hrun undan bryggjuþekjunni.Mælingar með fjölgeislamæli voru einnig gerðar í höfnunum á Raufarhöfn, Húsavík og Vopnafirði. Við skoðun á gögnum frá Raufarhöfn kom í ljós klettur rétt sunnan við beygjuna í innsiglingarrennunni á Raufarhöfn.  Ekki var vitað um þennan klett áður en dýpið niður á hann er 5.5. metrar.   Ýmislegt fleira hefur komið í ljós við notkun fjölgeislamælisins sem ekki getur þó talist fela í sér siglingahættu.    Sjá meðfylgjandi þrívíddarmyndir sem sjómælingamenn hafa unnið upp úr mælingagögnum úr fjölgeislamælinum.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.   Mynd/Landhelgisgæslan: Hér má sjá skemmd á bryggjuhorni á hafskipabryggjunni á Þórshöfn. Mynd/Landhelgisgæslan:  Á þessari mynd má sjá klettinn sem kom í ljós rétt sunnan við innsiglingarrennuna á Raufarhöfn.

Kafarar Landhelgisgæslunnar fundu hníf sem leitað var að vegna líkfundarmálsins

Þriðjudagur 3. mars 2004. Varðskipið Ægir kom til Neskaupstaðar upp úr hádeginu í fyrradag þar sem óskað hafði verið eftir aðstoð kafara Landhelgisgæslunnar við leit að eggvopni vegna rannsóknar á líkfundi í höfninni nýlega. Köfun hófst kl. hálf fjögur eftir að leitarsvæði hafði verið afmarkað. Þegar köfun var hætt kl. 18:08 hafði hnífurinn, sem leitað var að, ekki fundist. Í gær hófst köfun kl. 9 um morguninn.  Eftir að aðstæður og upplýsingar höfðu verið endurmetnar var nýtt leitarsvæði afmarkað.  Á ellefta tímanum fannst hnífur sem líklegt er talið að sé eggvopnið sem leitað var að.  Hnífurinn var afhentur lögreglu. Sjá meðfylgjandi myndir sem teknar voru af áhöfn varðskipsins Ægis.  Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr. Mynd/LHG: Léttbátur varðskipsins Ægis var notaður af köfurum Landhelgisgæslunnar. Sjónarhorn áhafnar Ægis. Mynd/LHG: Friðrik Hermann Friðriksson kafari leitaði í höfninni ásamt Jónasi Karli Þorvaldssyni og Jóhanni Erni Sigurjónssyni. Mynd/LHG: Frá vinstri Halldór Gunnlaugsson skipherra, Jónas K. Þorvaldsson, Jóhann Örn Sigurjónsson og Friðrik Hermann Friðriksson kafarar hjá Landhelgisgæslunni og Jónas Wilhelmsson yfirlögregluþjónn Fjarðarbyggðar.  

Leit að björgunarskipi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar árangurslaus

Miðvikudagur 3. mars 2004. Áhöfn TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar, fékk það verkefni í dag að leita að björgunarskipi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem tók út af flutningaskipinu Skaftafelli seint í gærkvöldi. Tilgangur leitarinnar var bæði að reyna að bjarga verðmætum og koma í veg fyrir siglingahættu sem stafað getur af svo stórum hlutum á reki. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar notuðu leitarforrit til að reikna út hugsanlegt rek og staðsetningu bátsins miðað við veður og sjólag. TF-SYN fór í loftið kl. 11:33. Svæðið sem leitað var á var frá Hópsnesi við Grindavík og austur að Knarrarósi.  Leitað var u.þ.b. 9 sjómílur út frá ströndinni. TF-SYN lenti aftur við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 14:57 eftir árangurslausa leit.  Tómas Helgason flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni tók meðfylgjandi myndir í fluginu.  Önnur þeirra er af Selvogsvita en hin af áhöfn TF-SYN í þessu tiltekna flugi. Á áhafnarmyndinni eru Tómas Helgason og Pétur Steinþórsson flugmenn, Einar H. Valsson og Magnús Örn Einarsson stýrimenn. Sem útkikksfólk komu 4 frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, Þórður Bergsson, Hallbjörn Magnússon, Elísabet S. Kristjánsdóttir og Pétur Kristjánsson. Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.  
Síða 2 af 2