Fréttayfirlit: ágúst 2005 (Síða 2)

Fyrsta heimsókn færeysks varðskips til Íslands - Áhöfn Brimils heimsækir Landhelgisgæsluna

Fimmtudagur 4. ágúst 2005. Í gær sigldi færeyska varðskipið Brimil frá Reykjavík eftir að skipherra og áhöfn varðskipsins höfðu heimsótt Landhelgisgæsluna.  Þetta er í fyrsta skipti sem færeyskt varðskip kemur til Íslands. Meðfylgjandi myndir tók Sveinbjörg Guðmarsdóttir er forstjóri og skipherrar Landhelgisgæslunnar fóru um borð í Brimil og heilsuðu upp á skipherra og áhöfn skipsins og þegar skipið sigldi úr höfn síðdegis í gær. Dagmar Sigurðardóttir lögfr./ upplýsingaftr. Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar, Jákúp M. E. Muller skipherrann á Brimli og Kristján Þ. Jónsson framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs Landhelgisgæslunnar bera saman bækur sínar í brúnni á Brimli. Brimil siglir úr Reykjavíkurhöfn áleiðis til Færeyja.

Björgun áhafnar skútunnar Svölu

Þriðjudagur 2. ágúst 2005. Áhöfn TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sótti í nótt áhöfn skútunnar Svölu RE, sem stödd var milli Íslands og Færeyja, og flutti hana til Reykjavíkur.Áhöfn skútunnar Svölu RE, sknr. 1840, var í sambandi við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á klukkustundar fresti frá því seinnipartinn í gærdag og óskaði eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar um kl. 22:05 í gærkvöldi en þá var áhöfn TF-LIF þegar kölluð út.  Skútan hafði lent í vandræðum á heimleið frá Færeyjum. Skútan var búin að missa segl og var í allhvössum vindi er óskað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar.  Hún var þá stödd á milli Færeyja og Íslands um 130 sjómílur frá Suðausturlandi.  Skútan var keyrð á olíu en orðin olíulítil og ástandið var orðið þannig að áhöfnin óskaði eftir að verða sótt.  Fjórir einstaklingar voru um borð, allt Íslendingar. TF-LIF fór í loftið kl. 22:47 og var komin að Svölu kl. 1:20 í nótt.  Hífing tókst vel og var búið að ná öllum í áhöfn skútunnar um borð í þyrluna kl. 2.  Þyrlan lenti síðan á Hornafirði rúmlega 3 til að taka eldsneyti.  Þaðan var haldið kl. 3:55 og lenti TF-LIF við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 5:17. Skútan Svala var smíðuð 1987 í Sadleryachts. Hún er nú mannlaus á reki.  Sjá meðfylgjandi myndir sem áhöfn TF-LIF tók af skútunni í nótt. Dagmar Sigurðardóttirlögfr./upplýsingaftr.

Tveir línubátar teknir fyrir ólöglegar veiðar

Þriðjudagur 2. ágúst 2005. Varðskip Landhelgisgæslunnar stóð tvo línubáta að meintum ólöglegum veiðum í Reykjafjarðarál norðaustur af Ströndum í nótt.  Þau voru að veiðum á svæði sem er lokað skv. reglugerð nr. 809/2002 um friðunarsvæði við Ísland en reglugerðin er sett með stoð í lögum nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.Skýrslur löggæslumanna á varðskipi Landhelgisgæslunnar verða sendar til sýslumannsins á Blönduósi en Landhelgisgæslan óskaði eftir því að lögreglan tæki á móti bátunum, yfirheyrði skipstjórana og fylgdist með hversu mikill afli kæmi upp úr þeim.Dagmar Sigurðardóttirlögfr./upplýsingaftr.

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar æfa viðbrögð við sprengjuhótun í erlendu skemmtiferðaskipi

Þriðjudagur 2. ágúst 2005. Síðastliðinn föstudag hófst sprengjuæfing í Sundahöfn í Reykjavík með áhöfn farþegaskipsins Seven Seas Navigator.  Skipherrann á farþegaskipinu hafði sent erindi til Siglingastofnunar Íslands og óskað eftir slíkri æfingu. Æfingin var skipulögð í samvinnu við öryggisfulltrúa skipsins, öryggisfulltrúa Siglingastofnunar og Landhelgisgæslu Íslands, flugdeild og sprengjudeild. Bakgrunnur æfingarinnar var að skipið var á ferð innan 12 mílna landhelgi Íslands og þá barst sprengjuhótun þess efnis að hryðjuverkasprengja væri falin um borð.  Skipherrann skipulagði strax sprengjuleit og sprengjan fannst brátt í rafmagnsklefa nálægt skemmtanasalnum í skut skipsins. Þar næst hafði skipstjórinn samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð.  Skipstjórinn var þá settur í samband við sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar sem ákváðu að fara um borð í skipið án tafar til að aftengja eða eyða sprengjunni.  Þeir voru fluttir um borð í skipið með þyrlu.    Allt tókst mjög vel og samstarfið á milli skipsins, Siglingastofnunar og Landhelgisgæslunnar var vel unnið og árangursríkt.  Áhöfn skipsins var mjög vel skipulögð og allir tóku þátt í æfingunni eins og um raunveruleika væri að ræða.  Sprengjusérfræðingur voru hífðir um borð úr þyrlu með sérstök verkfæri, tæki og tól og eftir stuttan fund með skipstjóranum var sprengjunni eytt. Skipstjórinn var mjög ánægður með æfinguna og sérstaklega með að opinber stofnunun á Íslandi gæti brugðist við svona verkefni.  Vegna alþjóðlegra reglna og ástandsins í heiminum í dag eru farþegaskip skyldug til að halda svona æfingu að minnsta kosti tvisvar á ári.  Landhelgisgæslan og Siglingastofnun ætla að skipuleggja fleiri æfingar í framtíðinni, bæði í höfnum og úti á sjó.  Í haust fer fram stór æfing í Keflavík með sprengjusérsveitum frá Atlantshafsbandalaginu og öðrum löndum Evrópu en það er æfingin Northern Challenge sem Landhelgisgæslan hefur skipulagt undanfarin ár.  Þar á meðal verður sérfræðingur sem hefur sérhæft sig í sprengjuhótunum og hryðjuverkum á farþegaskipum og flutningaskipum á sjó. Adrian King sprengjusérfræðingur Sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar látinn síga úr TF-SIF niður í farþegaskipið. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar, öryggisfulltrúi skipsins og aðrir starfsmenn sem komu að verkefninu að færa til búnaðinn sem notaður var við eyðingu á sprengjunni.Öryggisfulltrúi skipsins og sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar í sérstökum búningi sem notaður er við sprengjueyðingu.
Síða 2 af 2