Fréttayfirlit: 2009 (Síða 5)

Yfirgnæfandi líkur á að flakið sé Alexander Hamilton

Landhelgisgæslan telur yfirgnæfandi líkur á að flak bandaríska varðskipsins Alexander Hamilton sé fundið á hafsbotni norðvestan Flak_sonarvið Faxaflóa eða á Búðagrunni. Við eftirlitsflug TF-Sifjar greindi búnaður vélarinnar olíuflekk sem greinilega átti upptök sín á hafsbotni. Á mánudag gerði Landhelgisgæslan út leiðangur í samstarfi við fyrirtækin Hafmynd Gavia og köfunarþjónustu Árna Kópssonar. Til að auðkenna flakið var notast við fjarstýrðan kafbát og neðansjávarmyndavél.

Varðskipið Týr við eftirlit í Síldarsmugunni

Varðskipið TÝR var í gær við eftirlit í Síldarsmugunni sem er alþjóðlegt hafsvæði Norðaustur Atlandshafs TYR_Smuga_1fiskveiðinefndarinnar (NEAFC). Í Síldarsmugunni eru stödd um þrjátíu skip, meirihluti þeirra er staðsett norðarlega á svæðinu eða ANA af Jan Mayen. Skipin eru frá Rússlandi, Portúgal, Spáni, Færeyjum og Póllandi.

Leynifélagið heimsækir Landhelgisgæsluna

Landhelgisgæslan fékk í sumar heimsókn frá Leynifélaginu sem er útvarpsþáttur á Rás 1. Þátturinn er sérstaklega ætlaður börnum á aldrinum sex til tíu ára en segja má að allir aldurhópar hafi gaman af honum. Fyrsti þátturinn var á dagskrá síðastliðið þriðjudagskvöld og verða seinni þættirnir á dagskrá á næstunni.

Baldur í samstarfsverkefni Fiskistofu og Landhelgisgæslunnar

Sjómælingabáturinn Baldur kom til hafnar síðastliðinn sunnudag, þann 23. ágúst eftir tólf daga eftirlitsferð um SV-, NV- og NA-land. Gekk ferðin ágætlega en hún var farin í samstarfi við Fiskistofu. Farið var um borð í tuttugu og eitt skip í ferðinni en sambærileg ferð var farin fyrr í sumar sem einnig var samstarfsverkefni með Fiskistofu, var þá farið til eftirlits í tuttugu og þrjú skip.

Misskilningur við útkall á Herðubreið

Slysavarnarfélagið Landsbjörg vill koma á framfæri að við útkall á Herðubreið, laugardaginn 22. ágúst 2009, þar sem maður varð bráðkvaddur á fjallinu, kom upp atvik sem orsakaði misskilning varðandi aðkomu Landhelgisgæslu Íslands að aðgerðinni. Því hefur verið haldið fram að LHG hafi neitað að senda þyrlu á staðinn en svo var ekki. Einungis var verið að meta stöðuna og leita bestu leiða til að leysa verkefnið með eins öruggum og skilvirkum hætti og kostur var.

Varðskip í Síldarsmugunni

Varðskipið Týr er nú á heimleið frá Noregi en skipið lagði af stað frá Íslandi fyrir 10 dögum síðan. Tilgangur ferðarinnar var annars vegar að draga tvo dýpkunarpramma, Mikael og Gretti til Stamsund á Tyr_SortlandLofoten í Noregi. Hins vegar var ferðin nýtt til eftirlitsstarfa á Norður Atlantshafi og er varðskipið nú á leið í Síldarsmuguna þar sem eru um þrjátíu skip að veiðum. Með því að senda íslenskt varðskip í Síldarsmuguna minnir Landhelgigæslan á rétt Íslendinga á þessu hafsvæði og uppfyllir jafnframt alþjóðlegar eftirlitsskyldur sem aðili að Norðaustur Atlantshafsfiskveiðinefndinni (NEAFC).

Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna sprengjuhótunar

Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út laust eftir klukkan 12 í dag þegar sprengjuhótun barst Borgarholtsskóla í Grafarvogi. Var skólinn rýmdur í skyndingu og sprengjusérfræðingar ásamt lögreglumönnum leituðu í byggingunni. Engin sprengja fannst í skólanum.

AIS tæknin leysir sjálfvirku tilkynningaskylduna (STK) af hólmi

Eftir sextán mánuði eða þann 1. janúar 2011 mun AIS - sjálfvirkt auðkennikerfi skipa leysa af hólmi Racal STK kerfi í ferilvöktun skipa. Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tók fyrsta skref í breytingum þessum innan fjarskipta og ferilvöktunar skipa í júlí síðastliðnum á hafsvæði A1 þegar vaktstöð siglinga tók upp til reynslu fjarskipti með stafrænu valkalli á metrabylgju eða DSC-VHF (Digital select calling – very high frequency).

Aðhaldsaðgerðir kalla á takmörkun flugtíma og athafna

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í gær kl. 12:32 útkall Alfa þegar 67 ára maður fékk hjartastopp á Herðubreið. Áður en þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LIF var send af stað var maðurinn úrskurðaður látinn. Í samráði við Slysavarnarfélagið Landsbjörgu var ákveðið að Landhelgisgæslan fengi þyrlu frá Norðurflugi til að sækja hinn látna. Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar væri þá reiðubúin í útkall ef á þyrfti að halda.

Veðurskýrslur benda til að flakið sé Alexander Hamilton

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa aflað upplýsinga um skipin sem talin eru koma til greina sem skipsflök á botni Faxaflóa. Skipin eru bandaríska varðskipið Alexander Hamilton sem varð fyrir árás þýska kafbátsins U-132 þann 29. janúar árið 1942 og olíuskipið Shirvan varð fyrir árás þýska kafbátsins U-300 þann 10. nóvember 1944. Grunur um skipsflak vaknaði eftir að eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar TF-Sif flaug yfir svæðið þann 7. júlí sl. og greindi olíubrák með radar flugvélarinnar sem m.a. er notaður við mengunareftirlit.

Er skipsflakið í Faxaflóa breska olíuskipið Shirvan?

Frásögn okkar í gær af hugsanlegu skipsflaki í Faxaflóa hefur valdið talsverðum vangaveltum en auk bandaríska varðskipsins USCGC Alexander Hamilton sem sökk á svæðinu árið 1942 er talið að lýsingin geti einnig átt við um breska olíuskipið Shirvan sem þann 10. nóvember 1944 varð fyrir sprengjuárás þýska kafbátsins U-300.

Ægir við gæslu- og eftirlit á vestur- og norðurmiðum

Varðskipið Ægir kom til hafnar í Reykjavík sl. föstudag eftir Myndir_vardskipstur_029tveggja vikna eftirlit- og gæslu á Vestur- og Norðurmiðum að Eyjafirði. Farið var til eftirlits um borð í sextán skip og báta innan íslensku efnahagslögsögunnar og voru í kjölfarið gefnar út þrjár kærur og sex áminningar. Voru einnig gefnar út tvær skyndilokanir í samráði við vakthafandi fiskifræðing Hafrannsóknarstofnunar. Ferðin var einnig notuð til æfinga og þjálfunar með og án þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Landhelgisgæslan finnur (hugsanlegt) skipsflak á botni Faxaflóa

Í fyrsta eftirlitsflugi TF-Sifjar þann 7. júlí sl. sást olíuflekkur á SIF_FlugSjo1Faxaflóa með mengunar-eftirlitsbúnaði flugvélarinnar og virtist olían seitla upp undan yfirborði sjávar. Grunur beindist fljótlega að því að um skipsflak á hafsbotni væri um að ræða. Sjómælingabáturinn Baldur renndi með fjölgeislamæli bátsins yfir upptök olíuflekans og kom þá í ljós þúst á hafs-botninum á um 90 m dýpi sem er 8 m há, 97 m löng og 13 m breið. Líklegast er um að ræða varðskip bandarísku strandgæslunnar USCGC Alexander Hamilton sem sökk á svæðinu árið 1942.

Handfærabátur tekinn við meintar ólöglegar veiðar

Baldur, eftirlits- og sjómælingabátur Landhelgisgæslunnar stóð í morgun handfærabát að meintum ólöglegum veiðumBaldur_2074.__7._agust_2007 í skyndilokunarhólfi á Fljótagrunni vestan við Siglufjörð. Var honum vísað honum til hafnar á Siglufirði þar sem málið fór í hendur lögreglunnar.

Bilun í sjálfvirku tilkynningaskyldunni

Bilun var í sjálfvirku tilkynningaskyldunni ( STK) um allt land frá kl. 03:40-08:00 sl. nótt, nema á N-verðum Vestfjörðum og NA- landi. Af þeim sökum voru skip búin Racal tækjum (rauði kassinn) ekki í vöktun hjá Vaktstöð Siglinga og neyðarhnappur þeirra tækja óvirkur. Skip sem búin eru AIS og Inmarsat tækjum voru hinsvegar í vöktun.

Skátar heimsækja varðskip Landhelgisgæslunnar

Varðskip Landhelgisgæslunnar fékk í morgun heimsókn skatarSvanirútilífsskóla skátafélagsins Svana á Álftanesi. Um tuttugu börn á aldrinum 7-9 ára ásamt skátaforingjum fengu leiðsögn um skipið og voru margar spurningar lagðar fyrir áhöfn varðskipsins sem svaraði þeim af bestu getu.
Síða 5 af 7