Fréttayfirlit: apríl 2010

Varðskip á leið til aðstoðar portúgölskum togara

Agir_a_fullu_eftir_breytingar_i_okt_05_JPA
Varðskip Landhelgisgæslunnar er nú á leið til aðstoðar portúgölskum togara sem fékk veiðarfæri í skrúfuna við mörk 200 sjómílna lögsögunnar. Togarinn sem er við úthafskarfaveiðar fékk veiðarfærin í skrúfuna í morgun og var þá leitað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. Munu kafarar varðskipsins freista þess að skera veiðarfærin úr skrúfu togarans.

Íslenskt skip fær á sig brotsjó SV af Hvarfi

triton
Sjóbjörgunarmiðstöðin í Grönnedal á Suður Grænlandi hafði kl. 17:16 í gær samband við Landhelgisgæsluna og upplýsti að þeim hefði borist tilkynning um að kominn væri leki að íslensku skipi, Óskari sem staddur var 25 sjómílur SV af Hvarfi. Skömmu síðar bárust Landhelgisgæslunni frekari fregnir frá skipinu, komið hafði brotsjór yfir skipið og leki væri kominn í lest og vélarrúm.

TF-EIR sækir slasaðan fjallgöngumann á Skarðsheiði

EIR
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um kl. 17:02 í dag eftir að aðstoðarbeiðni barst til stjórnstöðvar frá vakthafandi lækni á Akranesi eftir að fjallgöngumaður hrasaði og meiddist við göngu á Skarðsleiði. Þyrluáhöfn var að ferja TF-GNÁ frá Akureyri til Reykjavíkur þegar útkallið barst.

Flugvél og þyrla Landhelgisgæslunnar staðsettar sem stendur á Akureyri

Sif_Lif_Gna2_BaldurSveinsson
Í Samhæfingarstöð almannavarna er náið fylgst með framvindu eldgossins á Eyjafjallajökli og reglulegir stöðufundir haldnir með þeim fjölmörgu stofnunum og fyrirtækjum sem koma að málum. Af öryggisástæðum voru flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF og þyrlan TF-GNA fluttar til Akureyrar. TF-SIF flaug í leiðinni yfir gosstöðvarnar og hafa ratsjármyndir verið sendar Veðurstofu og Raunvísindastofnun til upplýsinga.

Varðskipið Ægir siglir af stað í landamæraeftirlit fyrir Evrópusambandið

Varðskipið Ægir lagði úr Reykjavíkurhöfn kl. 22:00 í gærkvöldi áleiðis til Senegal en þar og á vestanverðu Miðjarðarhafi mun varðskipið næstu 6 mánuði sinna landamæraeftirliti fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins.

Skipið siglir til Dakar í Senegal með viðkomu í Las Palmas á Kanaríeyjum þar sem stjórnstöð Frontex er staðsett.

Bátur vélarvana í grennd við Garðskagavita

TYR_Akureyri44

Landhelgisgæslunni barst kl 08:40 aðstoðarbeiðni frá Steina GK, 5,8 brúttólesta handfærabát með einn mann um borð sem var vélarvana í grennd við Garðskagavita. Rak bátinn hratt í átt að Garðskagaflös og var 0,3 sjómílur frá skerjunum.

Kölluðu varðstjórar Landhelgisgæslunnar samstundis eftir aðstoð nærstaddra skipa og báta á rás 16, haft var samband við við varðskip Landhelgisgæslunnar, einnig voru björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Sandgerði og Keflavík, ásamt björgunarsveitum kölluð út.

Sáu gosopið opnast í eftirlitsbúnaði TF-SIF flugvélar Landhelgisgæslunnar

Á fréttavefnum vísi.is í dag er umfjöllun um TF-SIF, eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar sem hefur leikið aðalhlutverk við gagnaöflun við gosstöðvarnar á Suðurlandi. Í greininni segir að upplýsingarnar hafi gagnast við hættumat og veitt jarðvísindamönnum ómetanleg tækifæri til rannsókna. Hér á eftir fer greinin í heild sinni.

TF-SIF flýgur yfir gossvæðið með vísindamenn

TF-SIF eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar flaug yfir gosstöðvarnar í Eyjafjallajökli í dag. Tilgangur flugsins var að athuga gang eldgossins í Eyjafjallajökli, ná radarmyndum og öðrum gögnum með eftirlitsbúnaði flugvélarinnar. Mjög lítið rennsli er undan jöklinum og niður á Markarfljótsaura. Gosmökkurinn reis hæst í um 12-14000 fet, frekar gráleiturallan tímann sem flogið var yfir svæðinu.

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ kölluð út

GNA3_BaldurSveins
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ var kölluð út kl. 22:42 í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um sjómann sem féll útbyrðis af togara sem var að veiðum 67 sjómílur SV af Reykjanesi.

Varðskipið Ægir siglir til Senegal með hluti til stuðnings ABC barnahjálp

Myndir_vardskipstur_032
Næstkomandi þriðjudag 20. apríl siglir varðskip Landhelgisgæslunnar til Senegal þar sem skipið mun sinna verkefnum fyrir landamærastofnun Evrópusambandsins. Ákveðið var að að bjóða ABC barnahjálp að senda með skipinu dót fyrir skóla sem samtökin reka í Dakar.

Flugvél og þyrla Landhelgisgæslunnar fljúga að gosstöðvunum og safna gögnum fyrir viðbragðsaðila

14042010Gos1
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF lenti í Reykjavík kl. 1830 eftir að hafa flogið yfir Eyjafjallajökul. Voru aðstæður á gossvæðinu kannaðar og gögnum safnað með ratsjár-og hitamyndum. Kom í ljós að litlar breytingar hafa orðið á svæðinu, aðrar en þær að ásjóna gíganna í eldstöðinni er orðin afmynduð. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-EIR flaug að Eyjafjallajökli um kl. 19:30. Þegar komið var að jöklinum var búið að taka af megnið af skýjahulunni og sást vel í gosmökkin, var örlítið skýjateppi sem huldi gosstöðina sjálfa.

Radarmyndir frá TF-SIF mikilvægar heimildir um þróun gosstöðvanna á Eyjafjallajökli

Sif_Lif_BaldurSveinsson
TF-SIF eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar fór í flug með vísindamenn um gosstöðvarnar á Eyjafjallajökli í dag. Farið var í loftið kl. 16:56. Þetta flug var tilkomið til að athuga stöðuna á gosinu í Eyjafjallajökli en ekki hefur verið mögulegt að skoða stöðu gossins með öðrum tækjum en flugvél Landhelgisgæslunnar. Radarmyndir teknar á ELTA radar TF-SIF eru einu heimildirnar sem jarðvísindamenn hafa til að sjá hvernig gosið þróast og hvert rennsli frá því fer. Á sama tíma var þyrlan TF-GNÁ á svæðinu m.a. til aðstoðar við að að meta hlaup sem braust út frá Gígjökli.

TF-SIF staðsetur gosið nákvæmlega þrátt fyrir ekkert skyggni - Bylting fyrir viðbragðsaðila

14042010SIFMagnusT
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF fór í tvö flug yfir gosstöðvarnar í dag. Sá árangur og þær myndir sem Landhelgisgæslan hefur náð á undraskömmum tíma eru framar öllum vonum. Er í raun bylting fyrir íslensku þjóðina að eiga tæki sem getur kortlagt og hjálpað viðbragðsaðilum, með alveg nýjum hætti.

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF skiptir sköpum, - að sögn jarðvísindamanna

14042010Gos1
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF lenti á Reykjavíkurflugvelli kl. 11:30 með jarðvísindamenn. Á sama tíma hóf þyrlan TF-GNÁ sig á loft frá flugskýli Landhelgisgæslunnar en hún verður til taks ef á þarf að halda í námunda við gosstöðvarnar á Eyjafjallajökli. Að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar, jarðeðlisfræðings skiptir sköpum að hafa til afnota eftirlits- og leitarratsjá um borð í TF-SIF til að átta sig á eðli gosstöðvanna og þeim breytingum sem verða á svæðinu en framvindan hefur verið  hröð frá því gosið hófst sl. nótt.

Gosið staðsett við hábungu Eyjafjallajökuls - TF-SIF flýgur yfir svæðið með jarðvísindamenn

14042010

Samkvæmt upplýsingum frá flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF er gosið sem hófst í nótt staðsett rétt við hábungu Eyjafjallajökuls. Gosbólstrarnir eru nú komnir í 22 þúsund feta hæð. Öskufall er til austurs, nær að Fimmvörðuhálsi.

Stærð sigdældar virðist vera uþb 1km x 600 mtr.

Fundur norrænna sjómælingastofnana í Reykjavík

Fundur norrænna sjómælingastofnana, Nordic HydrographicKort_maelingar Commission (NHC) hófst í morgun á Hótel Reykjavík Centrum. Að samtökunum standa sex norrænar stofnanir sem annast sjómælingar þjóðanna sem þau tilheyra. Þessar þjóðir eru;   Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð.
Síða 1 af 2