Fréttayfirlit: júní 2010

TF-GNA í útkall á Snæfellsnes

GNA3_BaldurSveins
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 15:25 vegna meðvitundarlausar 18 ára stúlku á Heilsugæslustöðinni á Ólafsvík. Haldinn var símafundur með þyrlulækni og lækni á Heilsugæslustöðinni. TF-GNA fór i loftið kl. 16:04 og lenti á flugvellinum á Rifi kl. 16:40

TF-EIR skilað til leigusala

06062010EIRSkorradalsvatn2
Síðdegis í gær tók þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-EIR, á loft frá Reykjavíkurflugvelli og flaug til Bretlands þar sem henni verður skilað til leigusala en framlengdur leigusamningur þyrlunnar rann nýverið út. Þyrlan var tekin á leigu til árið 2007 en hún er í eigu CHC Helikopter Service.

Þyrla kölluð út eftir sprengingu á Grundartanga

Gna
Landhelgisgæslunni barst kl. 1935 beiðni um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna slyss sem varð í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.Sprenging varð í verksmiðjunni var einn maður alvarlega slasaður. TF-GNA fór í loftið tuttugu mínútum síðar eða kl. 19:55

Þyrla kölluð út vegna svifdrekaslyss í Spákonufelli

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun vegna svifdreka sem brotlenti í Spákonufelli sem er fyrir ofan Skagaströnd. Lenti þyrlan skammt frá slysstaðnum kl. 11:55.

TF-GNA sækir slasaða á Kirkjubæjarklaustur

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 23:09 á laugardagskvöld eftir að kona var stönguð af nauti við bæinn Kálfafell, sem er um 30 km. A-af Kirkjubæjarklaustri. TF-GNA fór í loftið kl. 23:36, flogið beina leið austur að Kirkjubæjarklaustri. Sjúkrabifreið flutti hina slösuðu til móts við þyrluna.

Fimmtán ár frá komu TF-LÍF

Lif1

Í dag eru 15 ár liðin frá því að þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF lenti í fyrsta sinn á Reykjavíkurflugvelli. Hefur TF-LIF í gegnum árin margsinnis sannað gildi sitt þar sem íslensk veður hafa oft á tíðum gert áhöfn og björgunaraðilum erfitt fyrir. Bjargað hefur verið hundruðum mannslífa með þyrlunni sem kemst víða þar sem annars væri óhugsandi að ná. Í Morgunblaðinu þann 24. júní 1995 kemur fram að fjölmargir lögðu leið sína að bækistöðvum Landhelgisgæslunnar við Reykjavíkurflugvöll, til að fylgjast með því þegar þyrlan lenti. Skömmu fyrir kl. 15 sást þyrlan yfir Reykjavík og fylgdu henni tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, TF-SIF og TF-GRO.

Þyrla sækir slasaða á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp

GNA_BaldurSveins
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ lenti við Landspítalann í Fossvogi kl. 15:00 með konu sem slasaðist í bílslysi á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp um hádegið. Landhelgisgæslunni barst kl 12:09 beiðni frá lögreglunni á Ísafirði og lækni á Hólmavík, um aðstoð þyrlu en tveir farþegar voru í bílnum þegar slysið varð.

Bátur á Breiðafirði dreginn til hafnar

Landhelgisgæslunni barst kl. 07:51 í morgun beiðni um aðstoð frá fiskibát að grásleppuveiðum við Blikasker á Breiðafirði. Engin hætta var á ferðum, var báturinn stjórnvana og óskaði eftir aðstoð við að komast í land. Haft var samband við björgunarsveitina Berserki í Stykkishólmi.

TF-GNÁ sækir sjúkling um borð í rússneska togarann Aleksey Anichkin

AlekseyAnakin
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um hádegi í dag vegna skipverja með hugsanlega nýrnasteina um borð í rússneska verksmiðjutogaranum Aleksey Anichkin sem staddur var um 25 sjómílur vestur af Reykjanesi. TF-GNÁ fór í loftið kl. 12:30.

Skúlaskeið strandar á klettasnös við Akurey

AsgrimurSBjornsson
Farþegabáturinn Skúlaskeið, með 10 farþega um borð auk áhafnar, standaði síðdegis í dag við norðanverða Akurey eða á klettasnös 25 metra frá eynni. Landhelgisgæslan heyrði af óhappinu rás 16, sem er neyðarbylgja fyrir skip og báta og öllum sjófarendum ber skylda til að hlusta á.Talið er að báturinn hafi strandað um kl. 15:30 en um 20 mínútum síðar voru farþegar komnir um borð í farþegabátinn Jökul sem var í nágrenni við bátinn. Einnig var björgunarbáturinn Stefnir frá Kópavogi á svæðinu þegar óhappið varð.

TF-GNA í sjúkraflug á Reykjaneshrygg

Björgunarmiðstöðin í Stavanger óskaði kl. 12:46 eftir aðstoð GNA3_BaldurSveinsþyrlu Landhelgisgæslunnar við að sækja 26 ára konu, sem talin var vera með botnlangabólgu, um borð í norska togarann Langvin. Togarinn er staddur að úthafskarfaveiðum á Reykjaneshrygg eða 207 sjómílur frá Reykjanesi. Eftir samráð við þyrlulækni Landhelgisgæslunnar var ákveðið að sækja konuna. Togarinn hífði veiðarfæri og hélt á fullri ferð með stefnu á Reykjanes.

Viðhald á ljósduflum.

Vardskip
Á dögunum var varðskipið TÝR í viðhaldsvinnu við ljósdufl í Faxaflóa, Hvalfirði, Hafnarfirði, Skerjafirði, Breiðafirði og Eyjafirði. Ljósduflin voru hreinsuð, sum voru einnig máluð og legufæri yfirfarin. Alls var unnið við 16 ljósdufl, þar af eru 8 stór járndufl sem hafa verið í notkun hér við land síðan í seinni heimsstyrjöldinni.

Línu- og handfærabát vísað til hafnar

Línu- og handfærabáturinn, Eyjólfur Ólafsson GK-38 sem leitað var að í kvöld fannst kl. 21:45 um 40 sjómílur SV af Reykjanesi eða á svipuðum slóðum og þegar síðast heyrðist til hans um hádegið. Var bátnum vísað til hafnar þar sem hann gerðist brotlegur við fiskveiðilöggjöfina með því að vera fyrir utan langdrægi fjareftirlitsbúnaðar. Einnig gerðist hann brotlegur við siglingalög og reglugerð um tilkynningaskyldu. Lögreglan mun taka á móti bátnum er hann kemur til hafnar.

Varðskip siglir með þyrlu til Grænlands

Fyrir skömmu flutti varðskipið TÝR þyrlu fyrir BlueWest Helicopters (Vesturflug) frá Ísafjarðardjúpi að ísröndinni fyrirGraenlandthyrlaDSC_6328 utan Scoresbysund. Sigldar voru um 250 sjómílur og af því var um helmingur með ísröndinni, en ísröndinn var um 100 sjómílur frá strönd Grænlands. Svipast var um eftir ísbjörnum á svæðinu, með verðandi borgarstjóra í huga, en án árangurs.

Könnunarleiðangur í Kolbeinsey. Útvörðurinn í norðri.

Nýverið fóru varðskipsmenn af TÝR í könnunarleiðangur í Kolbeinsey þar sem í ljós kom að verulega hefur gengið á skerið að undanförnu, er það ekki svipur á sjón. Tveir kollar með skarði á milli þeirra standa eftir. Svo virðist sem þyrlupallurinn sem steyptur var á milli kollanna sé með öllu horfinn. Áhöfn varðskipsins Óðins og starfsmenn Vita- og Hafnamálastofnunar byggðu þyrlupallinn árið 1989.

Lið Landhelgisgæslunnar náði 2. sæti í firmakeppni Bláalónsþrautarinnar

Hjol
Landhelgisgæslan náði í dag 2. sæti í firmakeppni Bláalónsþrautar Hjólreiðafélags Reykjavíkur. Frábær árangur hjá liðsmönnunum þremur, þeim Bjarna Ágústi Sigurðssyni, flugverndarstjóra flugrekstrardeildar, Höskuldi Ólafssyni, tæknistjóra flugtæknideildar og Jens Þór Sigurðssyni, flugmanni sem hjóluðu samtals 180 km í keppninni
Síða 1 af 2