Fréttayfirlit: desember 2010

Þyrla LHG aðstoðar við leit á Suðurlandi

Landhelgisgæslunni barst kl. 17:45 beiðni frá Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra um aðstoð þyrlu við leit að manni  á Suðurlandi.

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti slasaðan ökumann á sjúkrahús

Beiðni um útkall þyrlu barst kl. 19:23 í gærkvöldi vegna bílslyss sem varð í Langadal vestan við Húnaver.

Jólakveðjur frá Landhelgisgæslunni

Landhelgisgæsla Íslands sendir landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Öll íslensk skip eru komin til hafnar en síðusta skipið sem kom til hafnar var togarinn Þórunn Sveinsdóttir VE sem kom til Vestmannaeyja.

TF-LÍF sækir veikan mann til Vestmannaeyja

Landhelgisgæslunni barst kl. 11:57 beiðni um þyrlu vegna alvarlega veiks manns í Vestmannaeyjum en vegna veðurs var ekki var mögulegt fyrir sjúkraflugvél að lenda á flugvellinum þar.

Samkomulag gert um leitar- og björgunarsvæði ríkja á
norðurslóðum

Á fundi aðildarríkja Norðurskautsráðsins, sem haldinn var í Reykjavík 14.-16.
desember., var lokið gerð alþjóðasamnings um samstarf við leit og björgun á
hafi og í lofti á norðurslóðum.

LHG tekur þátt í vöruþróun fyrir JS Watch

Í dag birtust fjórir starfsmenn Landhelgisgæslunnar, sprengjussérfræðingur,  flugstjóri, sigmaður þyrlu og kafari í auglýsingu fyrir Gilbert úrsmið/ JS Watch .

Jólasamkoma í flugskýli LHG

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar áttu í gær saman hátíðlega jólastund í flugskýli
Gæslunnar við Nauthólsvík. Var jólasamkoman afar vel sótt

TF-LIF í útkall til Vestmannaeyja

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 03:40 í nótt vegna manns sem slasaðist í Vestmannaeyjum. TF-LIF fór í loftið kl. 04:14 og var haldið beint á flugvöllinn í Vestmannaeyjum

Hafís hefur fjarlægst landið

Í dag var farið í eftirlits- og hafískönnun undan Vestfjörðum með flugvél
Landhelgisgæslunnar. Slæmt veður var á svæðinu og ekkert skyggni. Á ratsjá
TF-Sifjar kom í sást að ísinn virðist hafa rekið frá landi, 

Hafísflug TF-SIF í desember

Við eftirlitsflug Sifjar, flugvélar Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi kom í ljós
að hafís var staðsettur næst landi um 48 sjómílur VNV af Grímsey, 46 sjómílur
ANA af Horni. 34 sjómílur norður af Skagatá og 25 sjómílur NNV af Straumnesi.

Undirritaður samningur vegna varahluta fyrir þyrlur LHG. Hefur mikla hagræðingu í för með sér.

Nýverið var undirritaður viðamikill samningur milli Landhelgisgæslunnar og Heli One í Noregi er varðar varahluti fyrir þyrlur Landhelgisgæslunnar, Líf og Gná sem báðar eru af tegundinni Aerospatiale Super Puma. Samningurinn mun hafa í för með sér mikla hagræðingu fyrir Landhelgisgæsluna.

Hafís 21,7 sml norður af Horni

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA fór í dag í gæslu- og hafíseftirlit fyrir Vestfirði. Kom þyrlan að ísrönd sem liggur milli Íslands og Grænlands til austurs. Kemur ísröndin næst landi um 21,7 sjómílu norður af Horni, 25,3 sjómílur frá Straumnesi og 43,6 sjómílur frá Barða, þar er hafísinn orðinn samfrosinn og með stórum íshellum sem getað verið hættulegar skipum.

TF-LÍF í bráðaflutning til Stykkishólms

LIF_borur
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 18:30 í kvöld eftir að læknir í Stykkishólmi óskaði eftir aðstoð þyrlunnar við að flytja slasaðan dreng á spítala í Reykjavík. TF-LÍF fór í loftið frá Reykjavík kl. 18:44 og lenti á flugvellinum við Stykkishólm kl. 19:17, þar sem sjúkrabifreið beið með drenginn ásamt móður sinni.

Eldur kom upp í línubát. Skipverjum tókst að slökkva eldinn.

Línubáturinn Lágey hafði samband við Landhelgisgæsluna kl. 14:51 á laugardag þegar eldur kom upp í vélarrúmi þegar báturinn var staddur í Látraröst við Bjargtanga. Tókst skipverjum strax að slökkva eldinn en óskað var eftir að björgunarskipið Vörður á Patreksfirði myndi sigla á móti Lágey.

Aðventuhlaup fór fram í dag

Adventhlaup2010IMG_0864
Hið árlega aðventuhlaup Landhelgisgæslunnar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fór fram í dag. Alls tóku 55 starfsmenn björgunarmiðstöðvarinnar í Skógarhlíð og makar þeirra þátt í hlaupinu. Tvær vegalengdir vori í boði, 7 km flugvallarhringur og 3 km Nauthólsvíkurhringur.  

Varðskipið Ægir kemur fyrir nýju öldudufli við Bakkafjöru

Ægir_E1F1894
Varðskipið Ægir sjósetti í gær nýtt öldudufl við Bakkafjöru að beiðni Siglingastofnunar. Er duflið staðsett um 500 m austan innsiglingarlínunnar til Landeyjahafnar og er því ætlað að mæla suðaustan öldur við Landeyjahöfn. Fyrir er eldra öldumælingadufl sem komið var fyrir fyrir árið 2002.
Síða 1 af 2