Fréttayfirlit: júlí 2012
Gott samstarf þyrluáhafnar og lögreglu við umferðareftirlit
Um helgina flaug þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- GNA með lögreglumenn til eftirlits um uppsveitir Árnessýslu austur eftir þjóðvegi 1 inn á Mýrdalssand og þaðan inn á Syðra Fjallabak . Gekk eftirlitið mjög vel en afskipti voru höfð af sex ökumönnum sem óku of hratt.
Há sjávarstaða um helgina
Vegna slæmrar veðurspár um helgina vill Landhelgisgæslan vekja athygli á að einnig er stórstreymt þessa daga. Reiknað er með að lægðin verði um 968mb og gæti hækkun sjávarborðs umfram flóðspá orðið um 45 cm.
Eldur um borð í fiskibát suður af Stórhöfða
Landhelgisgæslunni barst kl. 11:04 tilkynning um eld í vélarrúmi fiskibáts með sjö menn um borð sem staðsettur var um 7 sml. S- af Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Samstundis var þyrla Landhelgisgæslunnar ásamt björgunarskipum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Einnig voru nálæg skip og bátar beðin um að fara til aðstoðar. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið kl. 11:11.
Áhöfn Týs við eftirlit um borð í færeyskum skipum og bátum
Varðskipið Týr var nýverið við eftirlit á suðvestur, suður, suðaustur og austurmiðum. Varðskipsmenn fóru m.a. um borð í sjö færeyska handfæra og línubáta, íslenska togara og dragnótabáta. Við eftirlit um borð í færeysku bátunum kom í ljós að aflamagn var í samræmi við tilkynningar til Landhelgisgæslunnar.
Þyrla kölluð til leitar NA af Vatnajökli
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kl. 14:35 kölluð út að beiðni lögreglunnar á Egilstöðum til leitar að þýskum hjónum sem ætluðu að ganga yfir Eyjabakkajökul sem er í norðaustanverðum Vatnajökli.
Landhelgisgæslan og lögreglan við eftirlit á Kollafirði
Séraðgerða- og sprengjueyðingasvið Landhelgisgæslunnar var í sl. viku, ásamt lögreglunni í Reykjavík við eftirlit á Kollafirði á harðbotna slöngubátnum Flóka sem Landhelgisgæslan hefur í prófunum fyrir íslenska skipaframleiðandann OK Hull.
Þyrla sækir slasaðan ferðamann að Glym
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 14:35 í dag að beiðni lögreglunnar í Borgarnesi eftir að erlend ferðakona slasaðist á fæti fyrir ofan Glym í Hvalfirði. Þar sem erfitt var fyrir björgunarsveitarfólk að komast að staðnum var óskað eftir þyrlu. TF-LIF fór í loftið kl. 15:01 og sótti hina slösuðu.
Tvö þyrluútköll í dag
Tvisvar sinnum í dag var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar til bráðflutnings. Fyrra útkallið barst um klukkan tvö eftir að tilkynnt var um alvarlega veikan mann í sundlauginni í Þjórsárdal. Síðara útkallið barst kl. 17:05 eftir að erlendur ferðamaður fékk aðsvif við Jökulsárlón.
Varðskipið Ægir í slipp
Varðskipið Ægir er nú í slipp við Mýrargötuna en unnið er að reglubundnu eftirliti og viðhaldi á skipinu þar sem skipið er yfirfarið, öxuldregið, bolskoðað og málað. Mun skipið síðar í mánuðinum halda í Miðjarðarhafið þar sem Landhelgisgæslan mun fram á haust aðstoða Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins.
Annríki hjá stjórnstöðinni - slösuð ferðakona sótt með þyrlu - bátur í vandræðum
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 20:21 í kvöld beiðni frá 1-1-2 um aðstoð þyrlu eftir að ferðakona slasaðist skammt frá Landmannalaugum, milli Bláhnjúka og Brennisteinsöldu. Skömmu áður en óskað var eftir þyrlunni kviknaði í vélarrúmi báts N- af Siglufirði en skipverja tókst sjálfum að slökkva eldinn.
Hafís sást í eftirlitsflugi TF-SYN
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SYN fór í eftirlitsflug í gær þar sem flogið var frá Reykjavík um Hrútafjörð, Húnaflóa, Skagafjörð, Kögur og þaðan á Ísafjörð. Þyrluáhöfn sá ísrönd á leið út úr Húnaflóa og ákvað að athuga nánar staðsetningu hennar.
TF-GNA fann konu sem leitað var að
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um kl. 15 í dag að beiðni lögreglunnar á Hvolsvelli til aðstoðar við leit að erlendri ferðakonu sem var villt á hálendinu. Hún var talin vera í námunda við Landmannalaugar . Fór TF-GNA í loftið um kl. 15:15
Óskað eftir þyrlu LHG vegna sinuelds á Snæfellsnesi
Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar óskaði um kl. 19:30 eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar við að ráða niðurlögum sinuelds við Rauðkollsstaði á Snæfellsnesi.
Þyrluáhöfn fór beint í annan bráðaflutning
Önnur beiðni um útkall barst Landhelgisgæslunni um kl. 19:30 í kvöld þegar þyrlan var að lenda við Landspítalann eftir bráðaflutning frá Hólmavík. Óskaði fjarskiptamiðstöð lögreglunnar eftir þyrlunni til að flytja slasaða eftir umferðaróhapp á Landvegi, móts við Búrfell.
Þyrla kölluð út eftir að bílslys varð við Hólmavík
Landhelgisgæslunni barst kl. 16:55 beiðni frá fjarskiptamiðstöð lögreglunnar um aðstoð þyrlu eftir að bílslys varð í nágrenni Hólmavíkur. TF-LIF fór í loftið um kl. 17:30 og var við á slysstað um kl. 18:30. Lenti þyrlan við Landspítalann í Fossvogi um kl. 19:30.
Bátur vélarvana norður af Grundarfirði
- Fyrri síða
- Næsta síða