Alþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga hafin

-Viðbrögð við hryðjuverkaárásum æfð

  • Sprengjuserfraedingur-NC2009

10.9.2019 Kl: 15:22

Northern Challenge, árleg æfing sprengjusérfræðinga, hófst á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli á sunnudag og stendur fram í næstu viku. Um er að ræða alþjóðlega æfingu Atlantshafsbandalagsins sem Landhelgisgæslan hefur veg og vanda af. Hún fer að stærstum hluta fram á starfssvæði Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli en jafnframt á hafnarsvæðum víðs vegar á Suðurnesjum. Þetta er í átjánda sinn sem æfingin er haldin.

Markmið æfingarinnar er að æfa viðbrögð við hryðjuverkum þar sem heimatilbúnum sprengjum hefur verið komið fyrir. Verkefni sprengjusérfræðinganna er að leysa slíkan vanda. Samskonar búnaður og fundist hefur víðs vegar um heim er útbúinn og aðstæður hafðar eins raunverulegar og kostur er. Æfingin fer fram við fjölbreyttar aðstæður, t.d. á flugvelli, í höfnum, í skipi og við bryggju. Sérhæfð stjórnstöð er jafnframt virkjuð þar sem öll uppsetning og vinnubrögð eru samkvæmt alþjóðlegum ferlum Atlantshafsbandalagsins.

Æfingin veitir sprengjusérfræðingum, sem koma hvaðanæva að úr heiminum, einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla reynslu og þekkingu sinni til annarra liða. Northern Challenge hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og hefur skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga í Evrópu.

Að þessu sinni eru þátttakendurnir frá 17 þjóðum og alls eru 27 lið skráð til leiks. Þeir sem koma lengst að eru frá Nýja-Sjálandi en að æfingunni koma hátt í 300 manns.

Stjornstod-a-Keflavikurflugvelli-2019Sérhæfð stjórnstöð er jafnframt virkjuð þar sem öll uppsetning og vinnubrögð eru samkvæmt alþjóðlegum ferlum Atlantshafsbandalagsins.Thrautir-f-sprengjuserfraedinga-2019Samskonar búnaður og fundist hefur víðs vegar um heim er útbúinn og aðstæður hafðar eins raunverulegar og kostur er.