Annasamt á Hótel Grænuhlíð

Fjöldi skipa í vari undir Grænuhlíð í Ísafjarðardjúpi

Miklir umhleypingar eru í veðrinu á landinu og miðunum þessa dagana og hver lægðin rekur aðra þessa vikuna. Undanfarnar klukkustundir hefur suðaustanstormur gengið yfir með tilheyrandi úrkomu og belgingi. 

Eins og nærri má geta eru harla fá skip á sjó þegar bræla er á miðunum. 94 skip voru í ferilvöktunarkerfum stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar klukkan hálfsjö í morgun, þar af var 81 íslenskt. Eins og meðfylgjandi stöðumynd frá því á tíunda tímanum sýnir hafði hluti þessara skipa leitað vars undir Grænuhlíð á Ísafjarðardjúpi, eða Hótel Grænuhlíð eins og svæðið er stundum kallað á dögum eins og þessum. Átta togarar dóluðu þarna í rólegheitum í morgun.

Eftir því sem líður á daginn á veðrið að ganga niður. Á fimmtudaginn er hins vegar von á annarri djúpri lægð og síðan enn annarri á laugardagskvöldið þannig að gera má ráð fyrir áframhaldandi önnum á Hótel Grænuhlíð. 

Mynd með frétt: Wikimedia Commons