Fengu viðurkenningu og heiðursmerki fyrir mannúðarstörf í Írak

Hlutverk þeirra var að sinna þjálfun innlendra sprengjusérfræðinga .

  • IMG_7239

21.2.2019 Kl: 9:05

Jónas Karl Þorvaldsson og Sverrir Harðarson, starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingarsviðs Landhelgisgæslunnar, fengu í vikunni viðurkenningu og heiðursmerki Atlantshafsbandalagsins fyrir þátttöku í mannúðarverkefni bandalagsins í Írak. Hlutverk þeirra var að sinna þjálfun innlendra sprengjusérfræðinga og auka færni þeirra við sprengjueyðingu. Jafnframt var tilgangur verkefnisins að miðla áralangri þekkingu og reynslu sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar og stuðla að björgun mannslífa.

Arnór Sigurjónsson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins afhenti þeim viðurkenninguna sem undirrituð var af Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins.

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar hafa árum saman sinnt sambærilegum verkefnum erlendis sem hafa það að markmiði að auka öryggi almennra borgara.

Jónas Karl og Sverrir voru við störf í Írak frá apríl til júní í fyrra en þeir hafa hlotið umtalsverða þjálfun til að sinna sprengjueyðingu við krefjandi aðstæður. 

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, þakkaði Jónasi og Sverri fyrir vel unnin störf og óskaði þeim innilega til hamingju með viðurkenninguna.

IMG_7262_1550743027749Sigurður Ásgrímsson, Jónas Karl Þorvaldsson, Sverrir Harðarson og Georg Kr. Lárusson.

IMG_7246Jónas Karl Þorvaldsson og Arnór Sigurjónsson.

IMG_7234Heiðursmerki Atlantshafsbandalagsins.

IMG_7251Sverrir Harðarson og Arnór Sigurjónsson.

IMG_7237Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar mætti í sínu fínasta pússi.