Fyrsti Covid-19 sjúkraflutningur Landhelgisgæslunnar

Áhöfnin á TF-GRO flutti COVID-19 sjúkling frá Ísafirði til Reykjavíkur.

  • Flutningur

19.4.2020 Kl: 10:35

Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, flutti Covid-19 sjúkling frá Ísafirði til Reykjavíkur í gærkvöld. Þetta var fyrsta sjúkraflug Landhelgisgæslunnar af þessum toga. Upphaflega stóð til að sjúkraflugvél annaðist flutninginn en sökum þoku reyndist ekki unnt að lenda á flugvellinum á Ísafirði. Því varð að kalla þyrlusveit Landhelgisgæslunnar út.

Töluverðan undirbúning þurfti fyrir flugið, meðal annars var sérstakt flutningshylki haft með í för til Ísafjarðar og farið ítarlega yfir alla verkferla.

Þegar þyrlan lenti á Ísafirði fóru þyrlulæknir og stýrimaður með hylkið á sjúkrahúsið og þurftu að klæðast hlífðarbúnaði áður en inn var haldið. Sjúklingurinn var undirbúinn fyrir þyrluflugið og færður yfir í flutningshylkið.

Hylkið er afar mikilvægt fyrir sjúkraflutning sem þennan því ef rétt er staðið að undirbúningi á engin smithætta að vera fyrir utan það. TF-GRO flutti sjúklinginn á Landspítalann í Fossvogi en þar lenti þyrlan á þyrlupalli spítalans á ellefta tímanum í gærkvöld.

Tomas-Vilhjalmsson-flugvirki-Vidar-Magnusson-laeknir-og-Gudmundur-Ragnar-Magnusson-styrimadurTómas Vilhjálmsson, Viðar Magnússon og Guðmundur Ragnar Magnússon undirbúa sjúkraflugið.FlutningurSjúklingurinn fluttur um borð í TF-GRO.Sigurdur-Asgeirrsson-flugstjoriSigurður Ásgeirsson, flugstjóri á TF-GRO.