Georg Lárusson sæmdur riddarakrossi

Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 1. janúar 2019, sæmdi forseti Íslands 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.

  • Georg_1517939474488

1.1.2019 Kl: 20:10

Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi í dag Georg Kristinn Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Georg var einn fjórtán Íslendinga sem var þess heiðurs aðnjótandi að veita viðurkenningunni viðtöku en riddarakrossinn hlaut hann fyrir störf í opinbera þágu. Landhelgisgæslan óskar öllum orðuhöfum hjartanlega til hamingju en þeir eru:

  1. Agnes Anna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, Dalvík, riddarakross fyrir framlag til þróunar atvinnulífs í heimabyggð

  2. Árni Magnússon fyrrverandi skólastjóri, Garðabæ, riddarakross fyrir störf á vettvangi félags- og skólamála

  3. Björg Thorarensen prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á sviði lögfræði

  4. Georg Lárusson forstjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu

  5. Guðríður Ólafs Ólafíudóttir fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til velferðar- og mannúðarmála

  6. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur, Bretlandi, riddarakross fyrir framlag til fornleifarannsókna

  7. Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnarlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi heilsuverndar og lýðheilsu

  8. Kristín Aðalsteinsdóttir fyrrverandi prófessor, Akureyri, riddarakross fyrir störf á vettvangi menntavísinda

  9. Margrét Frímannsdóttir fyrrverandi alþingismaður, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu

  10. Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og jafnréttismála

  11. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til mannréttindamála og réttindabaráttu

  12. Tómas Knútsson vélvirkjameistari og stofnandi Bláa hersins, Sandgerði, riddarakross fyrir framlag á vettvangi umhverfisverndar

  13. Valdís Óskarsdóttir kvikmyndagerðarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar kvikmyndagerðar

  14. Þórhallur Sigurðsson leikari og tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar

    Georg-og-GudniGuðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi Georg Kristinn Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Meðfylgjandi mynd var tekin síðasta sumar þegar forsetinn ferðaðist með varðskipinu Þór.