Landhelgisgæslan hefur afskipti af handfærabát í samstarfi við lögreglu

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar hafði nú síðdegis afskipti af handfærabát sem var að veiðum undan Ströndum og hafði verið vísað til næstu hafnar af Landhelgisgæslunni. Voru skipverjar bátsins, tveir menn færðir til sýnatöku vegna gruns um að vera undir áhrifum við stjórn bátsins.

Landhelgisgæslan hafði fyrst afskipti af bátnum í gær en þá kom flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF að bátnum í eftirlitsferð sinni. Hafði þá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar orðið bátsins vör í eftirlitskerfum og séð að ekki virtist allt með felldu varðandi haffæri og lögskráningu bátsins. Áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunnar gaf skipverjum bátsins þegar fyrirmæli um að halda í land en þrátt fyrir ítrekuð fyrirmæli áhafnarinnar sem og stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar sinntu skipverjar bátsins ekki þeim fyrirmælum.

Það var því í dag sem þyrla Landhelgisgæslunnar var send á Norðurfjörð á Ströndum og í samstarfi við lögregluna á Vestfjörðum tók stýrimaður í áhöfn þyrlunnar, sem jafnframt er handhafi lögregluvalds og lögreglan á móti handfærabátnum er hann kom til hafnar um fimmleytið í dag. Vaknaði þá þegar grunur um að skipverjar væru ekki allsgáðir og var því ákveðið að flytja þá með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Hólmavíkur til sýnatöku.

Málið mun nú fara til frekari úrvinnslu hjá Landhelgisgæslunni og lögreglu.