Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland að hefjast

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju mánudaginn 4. apríl með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Flugsveitin kemur frá Air National Guard í  Westfield, Massachusetts. Alls munu um 150 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-15C orrustuþotur og KC-135 eldsneytisbirgðaflugvél. 

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 5. - 7. apríl.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki fyrir lok apríl. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.