Loftrýmisgæsla NATO við Ísland að hefjast

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju fimmtudaginn 29. september með komu flugsveitar tékkneska  flughersins. Alls munu um 70 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fimm JAS-39C Gripen orrustuþotur.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 29. september til 5. október.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki í byrjun nóvember. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í samvinnu við Isavia.