Loftrýmisgæsla NATO við Ísland að hefjast

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu rúmlega 200 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með sex F-15C orrustuþotur, ásamt eldsneytisbirgðaflugvélum.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 23. ágúst til 31. ágúst.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki í lok september. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í samvinnu við Isavia.