Týr bjargar pólskri skútu

  • Týr pólsk skúta 100907

Varðskipið Týr kom pólskri skútu til bjargar í dag. Skútan var vélarvana með rifin segl. Hún var á leið frá Reykjavík til Vestmannaeyja og ætlaði síðan að koma við í Skotlandi á leið til Póllands.

Meðfylgjandi myndir voru teknar um fjögurleytið í dag er flugvél Landhelgisgæslunnar, Syn, flaug yfir varðskipið Tý. Eins og sjá má á myndunum er léttbátur varðskipsins Týs að draga skútuna.

Skipstjóri skútunnar kallaði eftir hjálp á rás 16 þar sem skútan var vélarvana með rifin segl. Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði þegar eftir aðstoð nærstaddra skipa. Varðskipið Týr var skammt undan og hélt strax á svæðið.

Léttbátur varðskipsins Týs hefur nú dregið skútuna inn í Keflavíkurhöfn.  Um borð voru níu manns og eru þeir allir heilir á húfi.

Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.

Týr pólsk skúta 100907

Tyr__Pólsk skúta II_100907