Laus störf smyrjara og háseta hjá Landhelgisgæslunni
Miðvikudagur 19. september 2007.
Um þessar mundir er Landhelgisgæslan í leit að kraftmiklu og áhugasömu fólki til starfa um borð í varðskipum stofnunarinnar.
Af og til eru laus störf smyrjara og háseta um borð í varðskipum Landhelgisgæslunnar. Allir sem hafa áhuga á að vera hluti af sterkri liðsheild eru hvattir til að fylla út umsóknareyðublaðið sem nálgast má hér á heimasíðunni og senda til Landhelgisgæslunnar ásamt sakavottorði. Sjá umsóknareyðublöð sem má finna undir liðnum starfsmannasvið á heimasíðunni, einnig í hægri dálki á forsíðu undir fyrirsögninni, styttu þér leið - laus störf.
Með umsókn um starf heimilar umsækjandi bakgrunnsskoðun hjá lögreglu enda eru starfsmenn í áhöfnum skipanna handhafar lögregluvalds og eru gerðar kröfur til þeirra sem slíkra.
Svanhildur Sverrisdóttir
starfsmannastjóri
Úr myndasafni: Brunaæfing varðskipsmanna. Myndasmiður Jón Páll Ásgeirsson.
Úr myndasafni. Háseti að störfum um borð í varðskipi.