Leitað að skútu á hafsvæðinu milli Bermuda og Nýfundnalands, einn íslendingur um borð

Fimmtudagur 19.júní 2008

Bandaríska og kanadíska strandgæslan hafa í sameiningu staðið fyrir umfangsmikilli leit að seglskútunni Dystocia, á hafsvæðinu milli Bermuda og Nýfundnalands undanfarna daga. Seglskútan sem er 35 feta, einmastra, af Bavaria gerð, er í eigu íslendings og um borð er íslendingur, sem hugðist sigla skútunni til Íslands. Hann lagði af stað frá Bermuda þann 31.maí eða 1.júní og ekki hefur náðst samband við hann síðan 3.júní.

Þann 11.júní hafði Landhelgisgæsla Íslands samband við bandarísku og kanadísku strandgæsluna, sem hafa umsjón með leitarsvæðinu og fór fram á að eftirgrennslan yrði hafin. Þegar skútan hafði ekki skilað sér til St. John þann 13.júní var formleg leit hafin. Maðurinn er einn um borð.

Þrátt fyrir umfangsmikla leit hafa engin ummerki um skútuna komið fram. Svæðið sem leitað hefur verið á er 635000 ferkílómetrar og komu 4, C-130 Hercules og ein P-3 Orion eftirlitsflugvélar að leitinni.

Skipulagðri leit hefur verið hætt í bili en eftirgrennslan heldur áfram.

19.06.2008 SRS