TF-LÍF í sjúkraflug á Vesturlandi

  • P5310014

Föstudagur 10. apríl 2009

TF-LÍF þyrla Landhelgisgæslunnar var í gærkvöldi kölluð út vegna konu sem fengið hafði hjartastopp á hóteli á Vesturlandi. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um þyrluna kl. 19:29 í gegn um Neyðarlínuna og var flugtak TF-LÍF frá Reykjavíkurflugvelli kl. 19:52.

Á þeim tímapunkti var sjúkrabifreið lögð af stað með konuna til Reykjavíkur en kl. 20:03 lenti þyrlan við Fiskilækjarmýri, beið þar sjúkrabifreiðin og var konan flutt yfir í þyrluna. Flugtak frá Fiskilækjarmýri var kl. 20:09 og lent var á Reykjavíkurflugvelli kl. 20:20, þar beið sjúkrabifreið sem flutti konuna á Landspítalann í fylgd þyrlulæknis.

100409/HBS