Ráðist til uppgöngu í færeyskan togara - inni í íslenskri lögsögu án lögboðinna tilkynninga
Mánudagur 19. júní 2006.
Á meðfylgjandi mynd sjást fjórir menn úr áhöfn varðskipsins Óðins fara um borð í færeyska togarann Sancy í nótt. Skipið var þá á 9 sjómílna ferð og hafði skipstjórinn neitað að hlýða fyrirmælum skipherra varðskipsins.
Áhöfn Óðins stóð Sancy að því að vera inni í íslensku efnahagslögsögunni án þess að hafa sent tilkynningar til Landhelgisgæslunnar eins og krafist er í lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands nr. 22/1998.
Skipstjórinn neitaði að hlýða fyrirmælum skipherra varðskipsins um að stöðva skipið og var þá gripið til þess ráðs að ráðast um borð í skipið á ferð. Skipið hefur engin veiðileyfi í íslenskri efnahagslögsögu og var með slökkt á fjareftirlitsbúnaði sem þó er um borð. Skipstjórinn hætti öllum mótþróa eftir að menn úr áhöfn Óðins voru komnir um borð.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.
Mynd: Vala Agnes Oddsdóttir.