Varðskipið Ægir dregur grænlenskt togskip til hafnar á Íslandi

Mánudagur 12. október 2009

Varðskip Landhelgisgæslunnar kom kl. 09:00 í morgun að grænlenska togskipinu Qavak þar sem það var vélarvana um 200 sjómílur suð-vestur af Reykjanesi með fjóra menn í áhöfn.

Var skipið á leið til Danmerkur þegar vél þess bilaði í gærmorgun. Var þá send beiðni um aðstoð til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar, í gegnum flutningaskipið Naja Arctica sem kom Qavak til aðstoðar við bilunina. Var flutningaskipið um kyrrt til kl. 07:00 í morgun eða þar til íslenska varðskipið kom á svæðið. Höfðu þá skipin rekið um 30 sjómílur í norð-vestur. Togskipið Qavak er um 200 tonn að þyngd og 22 metra langt, í eigu Polar Seafood á Grænlandi.

Að sögn skipherra á Ægi var dráttarlínu skotið yfir í Qavak kl. 09:17 í morgun og gekk aðgerðin vel. Áhöfn skipsins er í góðu ásigkomulagi, veður á svæðinu, 20-25 hnútar (12 m/sek) talsverður sjór og 4-6 metra ölduhæð. Ágæt veðurspá er framundan en búist er við meðvindi á leið til Íslands. Ægir verður fyrr á ferðinni en áætlað var og munu skipin koma í Reykjavíkurhöfn kl. 20:00 í kvöld.

Qavak1

Línubyssan gerð klár

Qavak2

Birgir H. Björnsson yfirstýrimaður, Guðmundur R. Magnússon 3. stýrimaður
og Linda Ólafsdóttir háseti tilbúin að skjóta yfir.

Qavak3

 Tildráttartaug á leið yfir

Qavak4
Qavak á leið aftur með varðskipinu

Qavak5

 Linda Ólafsdóttir og Sævar M. Magnússon hásetar slaka tildráttartauginni út.

Qavak6

 Dráttartaugin á leið yfir

Qavak7

 Birgir fylgist með dráttartauginni

Qavak8

 Qavak9

Qavak komin í tog og lagt af stað með hann til Íslands

Myndirnar tók Guðmundur St. Valdimarsson.

121009/HBS