Sáu gosopið opnast í eftirlitsbúnaði TF-SIF flugvélar Landhelgisgæslunnar

Mánudagur 19. Janúar 2010

Á fréttavefnum vísi.is í dag er umfjöllun um TF-SIF, eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar sem hefur leikið aðalhlutverk við gagnaöflun við gosstöðvarnar á Suðurlandi. Í greininni segir að upplýsingarnar hafi gagnast við hættumat og veitt jarðvísindamönnum ómetanleg tækifæri til rannsókna. Hér á eftir fer greinin í heild sinni.

TF-SIF, ný flugvél Landhelgisgæslunnar, kom til landsins í fyrrasumar en hefur þegar sannað gildi sitt. Þetta á ekki síst við um mikilvægi hennar til rannsókna á eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli undanfarna daga og vikur. Er það mat vísindamanna að kynstrin öll af upplýsingum, sem nú hefur verið aflað, lægju ekki fyrir ef vélin hefði ekki verið keypt. Vegna óhagstæðra veðurskilyrða frá gosbyrjun hefði upplýsingaöflun án vélarinnar verið erfið eða ómöguleg og snertir því einnig almannaöryggi.

IMG_19042010
Mynd af gosinu 19. apríl 2010

Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra, segir tilkomu flugvélarinnar byltingu. „Það verður að segjast eins og er að ef við hefðum ekki haft vélina þá værum við að meta þetta í blindni. Þarna hefur verið lítið eða ekkert skyggni en radarinn hefur gefið okkur góða mynd af yfirborði jökulsins. Bæði höfum við séð hvernig sprungan liggur, hvar sigkatlar hafa myndast og hvar gosið nær í gegn. Síðan höfum við séð hvernig vatnið flýtur að hluta á yfirborði jökulsins." Víðir segir að allir sem koma að öryggismálum hér á landi hafi vonast til að búnaður vélarinnar gæfi aukna möguleika. „En reynslan nú þegar hefur farið fram úr öllum okkar villtustu draumum."

„Við erum að skrásetja ógrynni upplýsinga á hverjum degi sem annars hefðu einfaldlega ekki legið fyrir," segir Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur á Jarðvísindastofnun. „Í raun gefur þessi tækni okkur alveg nýja sýn á eldgos hér á landi." Ármann útskýrir að með radartækni um borð í vélinni sjáist í gegnum gosmökkinn og því hafi verið hægt að skrásetja og mynda þróunina á gosopinu. „Við sáum til dæmis á miðvikudaginn hvernig gatið opnaðist og stækkaði svo jafnt og þétt. Þetta er galdur." Ármann telur að upplýsingarnar sem aflað hefur verið til þessa muni hafa mikið vægi í framtíðarrannsóknum á eldstöðinni í Eyjafjallajökli. Þess utan sé hægt að vinna nýtt áhættumat af mun meiri nákvæmni en annars hefði verið. „Það er einfaldlega stórkostlegt að hafa aðgang að þessari vél sem er að mínu mati þegar orðin ómissandi."

Svavar Hávarðsson, Fréttablaðið, 2010, 19. Apríl). Flugvélin er bylting í gosrannsóknum. http://www.visir.is/article/20100419/FRETTIR01/786065140

IMG_2373

Friðrik Höskuldsson og Vilhjálmur Óli Valsson stýrimenn útskýra flugið sem
er framundan.

TF-SIF_15april2010_gigur_Eyjafjallajokuls_2.5km

Myndin sem fræg er orðin, í greininni segir að fornar sagnir kveði á um að
eldfjöll séu fordyri helvítis. Nýjasta tækni til myndatöku við erfið skilyrði virðast
hafa sannað að svo er. Myndin er tekin af jöklinum úr 2,5 kílómetra hæð.

IMG_014719042010
Gossvæðið.

Myndir Landhelgisgæslan