Þyrla kölluð út vegna skipverja sem slasaðist. Varð að snúa frá vegna veðurs.

  • GNA3_BaldurSveins

Fimmtudagur 11. nóvember 2010

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA var kölluð út kl. 19:51 í gærkvöldi vegna skipverja sem slasaðist um borð í Sólbak EA-1, VNV af Barða. Fór þyrlan í loftið kl. 20:46, haldið var fyrir Snæfellsnes og Látrabjarg og þaðan beint að skipinu. Komið var að Sólbak kl. 22:09 um 10 sml. VNV af Barða. Snjóbylur var á svæðinu og einungis um 200 m skyggni. Vindur var af NA 30-35 hnútar og ölduhæð 5-6 metrar. Vegna aðstæðna var ekki hægt að hífa við skipið og var öryggisins vegna snúið frá en flugmenn höfðu engin viðmið við þessar aðstæður. Haldið var inn á Patreksfjörð og lent kl. 22:35 á hafnargarðinum þar sem beðið var meðan skipið sigldi inn á Önundarfjörð. Ákveðið var eftir samráð við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar að halda til Ísafjarðar kl. 23:11 og freista þess að hífa manninn frá borði eftir að skipið væri komið í var.

Þegar komið var inn í Ísafjarðardjúp var aðeins 100-200 metra skyggni og ekki raunhæft að hífa manninn um borð í þyrluna. Var því tekin ákvörðun um að snúa við og taka eldsneyti á Rifi og biðja lækni frá Ísafirði að fara um borð í Sólbak með bát frá Flateyri. Var þá óskað var eftir aðstoð björgunarsveitar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Flateyri. Lenti TF-GNA á Rifi kl. 00:46. Upplýsingar frá Sólbak fengust um kl. 01:28 að læknir væri kominn um borð í Sólbak og flutningur á sjúklingnum í land og til Ísafjarðar stæði yfir. Var því ákveðið að þyrlan myndi halda til Reykjavíkur þar sem lent var kl. 02:27.