Aníta Líf komin til hafnar
Fimmtudagur 31. mars 2011
Baldur, sjómælinga- og eftirlitsskip Landhelgisgæslunnar ásamt Fjölva, pramma Köfunarþjónustunnar komu til Reykjavíkur síðdegis með fiskibátinn Anítu Lif sem sökk norður af Akurey á laugardag. Með í för voru fulltrúar Rannsóknarnefndar sjóslysa og tryggingafélags. Björgunaraðgerðir stóðu yfir frá því snemma i morgun.
Kafarar Landhelgisgæslunnar köfuðu niður að bátnum á 30 metra dýpi og könnuðu ástand hans og umhverfi áður en settar voru festingar í bátinn og hann hífður upp af hafsbotni með krana sem er á Fjölva. Var hann dregin af prammanum til Reykjavíkurhafnar þar sem sjó var dælt úr bátnum og hann síðan hífður á vörubílspall. Framundan er frekari rannsókn málsins.
Undirbúningur fyrir köfun. Jónas Þorvaldsson, aðstoðar Marvin Ingólfsson,
Teitur Gunnarsson klár.
Farið af stað í köfun á rúmlega 30 metra dýpi, baujan sýnir staðsetningu
bátsins. Óðinn, harðbotna bátur LHG á vaktinni.
Fylgst með köfun í gegnum linsu myndavélar.
Ástand bátsins skoðað áður en settar voru festingar og hann hífður upp
Fjölvi, prammi Köfunarþjónustunnar hífir bátinn upp
Við komuna til Reykjavíkur var Aníta Líf hífð upp á yfirborðið
Aníta Líf komin á vörubílspall
Myndir HBS