Radarmyndir sýndu gosstrók sem steig upp í 1,5 km hæð

  • TFSIF_Inflight3_ArniSaeberg

Laugardagur 28. maí 2011

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF fór í eftirlitsflug í gær þar sem m.a. var aflað upplýsinga um gosstöðvarnar í Grímsvötnum. Á radarmyndum sást gosmökkur sem steig beint upp í loftið og náði um 1,5 km. hæð. Var strókurinn frekar ljósleitur og sást ekki aska í honum. Samkvæmt þessu er greinilegt að gosinu er ekki lokið. Næstu daga verður flogið reglulega yfir gosstöðvarnar og fylgst með þróuninni. Radar
myndir og önnur gögn úr eftirlitsbúnaði eru ætíð send vísindamönnum til frekari greiningar.

Grimsvotn27052011

Gosstrókur rís upp úr eldstöðinni. Hæð ca. 1,5km. Smella á til að stækka.


Gigur27052011
Ratsjármynd (SPOTSAR) af eldstöðinni í Grímsvötnum.
Smella  til að sjá stækkun.