TF-SIF á heimleið

  • Aegir_SIF

Þriðjudagur 20. desember 2011

Verkefnum TF-SIF,  flugvélar Landhelgisgæslunnar  árið 2011 er nú lokið fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Flugvélin er nú á heimleið frá Ítalíu og er gert ráð fyrir að hún lendi á Reykjavíkurflugvelli á morgun miðvikudag.  

TF-SIF hefur síðastliðna tvo mánuði gert út frá Brindisi og verið við eftirlit á Miðjarðarhafi og Eyjahafi. Á tímabilinu hefur áhöfn flugvélarinnar fundið báta og fleytur með alls 267 flóttamönnum sem síðan var komið til bjargar og aðstoðar með varðskipum og björgunarbátum á svæðinu.

Landhelgisgæslan tók á árinu þátt í verkefnum Frontex með varðskipinu Ægi samfleytt frá júní-október en flugvélinni TF-SIF,  með hléum frá sama tíma. Varðskipið Ægir tók þátt í fjöldamörgum björgunaraðgerðum þar sem samtals 495 flóttamönnum var bjargað um borð og fluttir til hafnar með varðskipinu Ægi eða öðrum björgunarskipum á svæðinu, þar af voru 272 í alvarlegum lífsháska.  

TFSIF_Inflight3
 
Megintilgangur með eftirliti Frontex er landamæragæsla en verkefnin þróast oft á tíðum yfir í að verða björgunaraðgerðir.  Á sjó stafar það m.a. af því að fólkið er á illa útbúnum fleytum sem ekki eru ætlaðar til lengri siglinga. Þeim sem skipuleggja smyglið stendur í flestum tilfellum á sama um örlög flóttafólksins eftir að þeir hafa fengið fargjaldið greitt.

AhofnSIF21082010
Hluti af áhöfn TF-SIF

Í upplýsingum frá Frontex kemur fram að Alþjóðasiglingamálastofnunin (á ensku: IMO sem stendur fyrir International Maritime Organization) tekur árlega saman upplýsingar um björgunaraðgerðir á hafinu en þar segir að á árinu 2010 hafi tæki á vegum Frontex bjargað 98 % af öllum þeim sem bjargað var á sjó í heiminum.  Samkvæmt því má segja að mannúðarstarf sé viðamikill þáttur í starfsemi Frontex.

Mynd TF-SIF og Ægir: Guðmundur St. Valdimarsson.