Rúnar vélstjóri kveður Landhelgisgæsluna eftir 17-18 ára starf
Miðvikudagur 8. mars 2006.
Rúnar Jónsson vélstjóri á varðskipinu Ægi hætti nýlega störfum hjá Landhelgisgæslunni. Hann hóf störf á gamla Ægi sumarið 1959 og því eru liðin 47 ár frá því að hann kom fyrst til Landhelgisgæslunnar. Það telst til tíðinda þegar menn, sem hafa svo lengi tengst Landhelgisgæslunni, hætta störfum. Rúnar var 1. vélstjóri á varðskipinu Ægi þegar hann hætti en hafði einnig oft gegnt yfirvélstjórastarfinu.
Rúnar hóf nám í Vélskóla Íslands árið 1958 og lauk námi árið 1961. Hans fyrsta starf hjá Landhelgisgæslunni var því sumarstarf milli fyrsta og annars bekkjar í Vélskólanum. Sumarið 1959 var gamli Ægir að mestu við síldarleit. Þórarinn Björnsson var skipherra og yfirvélstjórarnir voru þeir Lárus Magnússon og Andrés Jónsson.
Sumarið 1960 kom Rúnar svo til starfa á varðskipinu Þór en þá var meginverkefnið fiskveiðieftirlit og að verja 12 sjómílna Landhelgina.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.
Kristján Þ. Jónsson framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, Georg Kr. Lárusson forstjóri, Steinvör Gísladóttir ritari forstjóra, Rúnar Jónsson vélstjóri, Hafsteinn Hafsteinsson fyrrverandi forstjóri og Halldór Benóný Nellett skipherra á varðskipinu Ægi. Fyrrverandi forstjóra var boðið til að skoða varðskipið Ægi eftir breytingar og endurbætur á því í Póllandi og því gat Rúnar kvatt tvo forstjóra á einu bretti í hádegisverði um borð í Ægi um það leyti sem hann lét af störfum.
Rúnar vélstjóri. Mynd: Jón Páll Ásgeirsson.