Sprengjusveit eyðir tundurdufli á Héraðssandi

  • 2Tundurdufl-06.01.2012-009

Föstudagur 6. janúar 2011

Landhelgisgæslunni barst í gær tilkynning um dufl sem fannst við Selfljótsós á sunnanverðum Héraðssandi. Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar var upplýst um málið og fengu þeir sendar myndir sem staðfestu að um var að ræða tundurdufl frá seinni heimstyrjöldinni. Talið var nauðsynlegt að fara á staðinn til eyðingar.  

Komu sprengjusveitarmenn austur í gærkvöldi og í birtingu var haldið á staðinn. Var um að ræða eitt dufl og reyndist vera sprengiefni í því. Var því eytt á staðnum með dínamíti og plastsprengiefni, sjá myndskeið.  Ekki sáust fleiri dufl í sandinum að þessu sinni.

4Tundurdufl-06.01.2012-001
Sprengjusérfræðingur kannar innihald duflsins

Að sögn sprengjusérfræðinga geta tundurdufl varðveist vel í sandi ef þau er alveg grafin niður en koma upp á yfirborðið við breytingar í sandinum - eins geta þau horfið skyndilega. Mikilvægt er fyrir sprengjusérfræðinga að vera fljótir á vettvang eftir að tilkynning um dufl hefur borist til þeirra. Best er að hafa samband við 112 sem gefur samband áfram til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar.

1Tundurdufl-06.01.2012-014

Landhelgisgæslan hefur gert um 5000 tundurdufl óvirk af þeim rúmlega 100 þúsund sem Bretar lögðu úti fyrir Austfjörðum í seinni heimstyrjöldinni. Áttu duflin að að loka siglingaleið þýskra kafbáta út á Atlantshafið.

2Tundurdufl-06.01.2012-009
Duflið tilbúið til eyðingar

3Tundurdufl-06.01.2012-007

Myndir Sigurður Ásgrímsson, yfirmaður sprengjusveitar