Hálfu tonni af rusli safnað á svæði LHG við Keflavíkurflugvöll

  • NC2011_IMG_3404

Miðvikudagur 29. febrúar 2012

Um helgina stóð yfir mikið hreinsunarátak innan svæðis Landhelgisgæslunnar við Keflavíkurflugvöll. Sundfélag Keflavíkur tók að sér verkefnið en mikið rusl hafði safnast upp víða um svæðið. Samtals safnaði íþróttafólkið um hálfu tonni af sorpi yfir helgina!

Skýringin á sorpinu er til allrar hamingju ekki sú að starfsmenn Landhelgisgæslunnar gangi illa um. Mikil snyrtimenni vinna hjá Landhelgisgæslunni en staðreyndin er sú að sjaldnast er logn við Keflavíkurflugvöll og virðist sem ruslið eigi mjög greiða leið inn á svæðið.

Mikil ánægja var með árangur helgarinnar og þakkar Landhelgisgæslan sundfélaginu innilega fyrir aðstoðina og finnst gleðilegt að geta með þessum hætti stutt við bakið á efnilegu íþróttafólki á svæðinu.