Þyrla danska flotans í flugskýli Landhelgisgæslunnar

  • LynxIMG_5199

29. febrúar 2012

Lynx þyrla af danska varðskipinu Vædderen kom í vikunni til viðhalds í skýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli en um er að ræða reglubundna skoðun þyrlunnar sem fram fer tvisvar á ári. Flugvirkjar danska flotans hafa um árabil fengið að nota aðstöðu Gæslunnar en um tíu manns fylgja þyrlunni að þessu sinni. Mikil samvinna hefur ætíð verið á milli Landhelgisgæslunnar og varðskipa danska flotans sem eru við gæslustörf á hafinu umhverfis Grænland.

Fer þyrlan að viðhaldi loknu um borð í varðskipið Hvidbjörnen sem kom til Reykjavíkurhafnar í morgun og dvelur hér í nokkra daga.

LynxIMG_5205

LynxIMG_5207