Þyrla kölluð út vegna vélsleðaslyss
Sunnudagur 18. mars 2012
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 15:38 beiðni frá Neyðarlínunni um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að vélsleðaslys varð í Flateyjardal milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa.
Þyrluáhöfn var samstundis kölluð út og fór TF-GNA í loftið kl. 16:12.
Þyrlan lenti á vettvangi kl 17:31 og var hinn slasaði undirbúinn fyrir flutning og færður um borð í þyrluna. Lent var við Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri kl. 18:02.