Fjögur þúsund og fimmhundruð manns heimsóttu varðskipið Þór

  • SjomannadagurTHOR8

Sunnudagur 3. júní 2012

Varðskipið Þór var opið til sýnis um helgina í tilefni sjómannadagsins og Hátíðar hafsins. Mikið líf og fjör var um borð enda lögðu fjölmargir leið sína að Grandagarði í veðurblíðunni þar sem varðskipið var staðsett og voru samtals 4500 manns sem komu um borð til að skoða skipið, spjölluðu við áhöfnina og kynntu sér getu,  tækni og búnað varðskipsins.

SjomannadagurTHOR1
Mjög vinsælt var að prófa sætin í brúnni

SjomannadagurTHOR2
Andri stýrimaður sýndi stjórntækin í brúnni

SjomannadagurTHOR7
Biðröð myndaðist skamman tíma meðan mest var á Grandagarði.

SjomannadagurTHOR9

SjomannadagurTHOR5
Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs var á staðnum
og spjallaði við gestina

SjomannadagurTHOR3
Varðskipið Þór fánum prýddur á Sjómannadegi