Björgunarþyrlan Líf flutti veikan sjómann til Reykjavíkur
Fimmtudagur 19. janúar 2006.
Læknir á Ólafsvík hafði samband við vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gegnum Neyðarlínuna kl. 16:27 og óskaði eftir aðstoð vegna veiks skipverja um borð í bát sem staddur var 25 sjómílur vestur af Snæfellsnesi eða í um 2 og ½ tíma siglingu frá Ólafsvík. Honum var gefið samband við lækni í áhöfn björgunarþyrlunnar Lífar og óskaði læknirinn á Ólafsvík eftir þyrlu til að sækja skipverjann í samráði við hann.
Líf fór frá Reykjavík kl. 16:49 og var búið að ná sjómanninum um borð í Líf kl. 17:54. Þyrlan lenti síðan við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 18:22 og þaðan var veiki sjómaðurinn fluttur með sjúkrabíl á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Sjá meðfylgjandi mynd sem Þórarinn Ingi Ingason þyrluflugmaður tók í sjúkrafluginu.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.