Leitar- og björgunaræfingin SAREX Greenland Sea 2012 hafin

  • Þór á æfingu með Norsku varðskipi

Mánudagur 10. september 2012

Í dag hefst við austurstönd Grænlandsfjölþjóðlega leitar- og björgunaræfingin SAREX Greenland Sea 2012 sem haldin er í tengslum við samning Norður Heimskautsráðsins vegna leitar og björgunar Í æfingunni, sem stendur til 14. september munu þjóðirnar sem standa að Norður Heimskautsráðinu þjálfa sameiginleg viðbrögð þegar skemmtiferðaskip lendir í áföllu á afskekktri austurströnd Grænlands. Takmark æfingarinnar er að þjálfa raunveruleg leitar- og björgunarviðbrögð Norðurskautsþjóðanna, á svæði sem fjarri er öllum björgunareiningum.

Æfingin sem er mjög umfangsmikil, fer fram norðaustarlega á Grænlandshafi, milli Daneborg og Meistaravíkur. Annarsvegar er um að ræða leitaræfingu á hafi úti og hins vegar innfjarðaræfingu þar sem sett er á svið strand skemmtiferðaskips á leið frá Svalbarða til Ella Eyju. Þegar tilkynningar hætta að berast frá skipinu hefst leit á hafsvæðinu undan austurströnd Grænlands Í seinni hluta æfingarinnar lendir sama skip í eldsvoða og að því kemur leki. Fer þá af stað leit og björgun, bæði í skipinu sjálfu og á svæðinu. Hlúa þarf að sjúklingum og flytja þá til Íslands og Nuuk á Grænlandi.

SAREX_2012Við undirbúning æfingarinnar hefur Landhelgisgæslan annast samskipti við Norðurskautsþjóðirnar fyrir Íslands hönd en yfirumsjón æfingarinnar hefur verið í höndum danska sjóhersins. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar taka þátt með margvíslegum hætti: í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sem jafnframt er leitar- og björgunarstjórnstöð fyrir hafið umhverfis Ísland, varðskipinu Þór, flugvélinni Sif auk þess sem gistiaðstaða og flugskýli Landhelgisgæslunnar í Keflavík verður nýtt með ýmsum hætti fyrir flugáhafnir, slasaða og aðra fulltrúa æfingarinnar. Einnig tekur Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra þátt auk Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Isavia ogg Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. Sjúkraflutningsmenn og slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru m.a. um borð í varðskipinu Þór en alþjóðasveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar mun verða flutt ásamt viðeigandi búnaði með flugvél á svæðið í vikunni Samhæfingarstöð Almannavarna verður virk meðan á björgunaraðgerðum stendur. Þær þjóðir Norður Heimskautsráðsins sem senda búnað og björgunareiningar á svæðið eru auk Íslands: Kanada, Noregur, Bandaríkin, Grænland, Færeyjar og Danmörk.

Myndir frá varðskipinu Þór.

Smellið á netslóðirnar til að sjá umfjöllun á heimasíðu sjóhersins og flughersinsþar sem fjallað er um undirbúning dönsku flugsveitarinnar sem m.a. sérhæfir sig í bráðaflutningi og umönnun þeirra sem hafa orðið fyrir ofkælingu.

Heimasíða danska sjóhersins.
Heimasíða danska flughersins
http://forsvaret.dk/FTK/Nyt%20og%20Presse/Pages/GLSAREX.aspx

 
Ýmsar fréttir af æfingunni.

Fréttir frá heimavarnaliðinu á Grænlandi eru Setja inn efni úr skjalasafnihér:
http://www.hjv.dk/MHV/Nyheder/Sider/NytfraSAREXGreenlandSea2012.aspx

www.sarexpresse.wordpress.com

Sermitsiaq - Grænlandi - 10.09.2012
http://sermitsiaq.ag/node/135436

Thor_ahofn2_aefing_11092012
Unnið í brú Þórs

Thor_Danirumbord1209012
Léttabátur Þórs kemur út leiðangri

Thor_Lynx_eldsneyti
Lynx þyrla Dana fær eldsneyti frá varðskipinu Þór.