Varðskipið Þór fékk Björgvinsbeltið að gjöf frá SL

  • Bjorgbeltidafh1

Þriðjudagur 16. október 2012

Varðskipið Þór fékk í gær björgunarbúnaðinn Björgvinsbeltið að gjöf frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Óskar Jónsson meðframleiðandi Björgvinsbeltisins afhentu Páli Geirdal skipherra og Ásgrími L. Ásgrímssyni, framkvæmdastjóra aðgerðasviðs og áhöfn varðskipsins gjöfina um borð.

15102012AhofnThor
Áhöfn Þórs við afhendinguna.

Björgvinsbeltið var upprunalega hannað fyrir rúmum tveimur áratugum af Björgvin Sigurjónssyni, stýrimanni og skipstjóra í Vestmannaeyjum og hefur beltið margsannað gildi sitt við björgun mannslífa. Hefur beltið verið endurhannað með tilliti til nútímakrafna í björgunarmálum. Það þykir einstaklega traust og einfalt í notkun, sem er afar mikilvægur kostur við björgun. Nýja Björgvinsbeltið er framleitt úr enn sterkara og veðurþolnara efni en fyrirrennari þess auk þess sem á beltið hefur verið bætt endurskinsmerkjum, ljósi og flautu, m.a. í þeim tilgangi að auðvelda leit og björgun í myrkri.

Bjorgbeltidafh
Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Páll Geirdal skipherra, Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar og Óskar Jónsson meðframleiðandi Björgvinsbeltisins

Björgvinsbeltið er ekki ósvipað því sem notað er við hífingar með þyrlum Landhelgisgæslunnar. Því fylgja kastlínur, það flýtur og hægt er að bjarga tveimur mönnum með því í einu beri svo undir. Þá er hægt að kasta Björgvinsbeltinu lengra og af meiri nákvæmni en bjarghring. Ekki er þó ætlast til að Björgvinsbeltið komi í staðinn fyrir annan björgunarbúnað, heldur sem viðbótarbúnaður um borð í skipum, við hafnir og á fleiri stöðum.

Slysavarnafélagið Landsbjörg stendur fyrir forvarnarátaki fyrir sjómenn og landsmenn alla í samstarfi við Sjóvá og framleiðendur Björgvinsbeltisins.  Landsbjörg hefur sett sér það markmið að dreifa sem flestum nýjum Björgvinsbeltum um borð í skip og báta auk fleiri staða, svo sem við hafnir, bryggjur og aðra staði, þar sem nauðsyn er að hafa björgunarbúnað við hendina.

Öllum ágóða af sölu nýja Björgvinsbeltisins verður varið til rekstrar björgunarskipa Landsbjargar en þau eru fjórtán talsins. Skipin eru staðsett þar sem slysahætta er talin mest vegna sjósóknar og á hverju ári aðstoða þau hátt í hundrað skip og báta við Íslandsstrendur.