Varðskipið Þór opið til sýnis í Þorlákshöfn

  • ÞOR Arni Saeberg

Föstudagur 26. október 2012

Varðskipið Þór er væntanlegt  til Þorlákshafnar á morgun, laugardaginn 27. október og er áætlað að varðskipið verði þar opið til sýnis frá kl. 13:00-16:00.  Landhelgisgæslan hvetur fólk til að koma um borð og skoða hið glæsilega varðskip sem er bylting í vöktun, öryggismálum,  leit og björgun innan íslenska hafsvæðisins.

Að öllu jöfnu eru 18 manns í áhöfn skipsins en sem er sami fjöldi og á varðskipunum Ægir og Týr. Á meðal verkefna sem skipinu er ætlað að sinna eru: eftirlit- og löggæsla á hafinu, fiskveiðieftirlit, leit og björgun, dráttarverkefni, slökkvistörf, viðbrögð við umhverfisslysum, sjómælingar og einnig getur orðið að fljótandi stjórnstöð í almannavarnaaðgerðum. Einnig geta þyrlur Landhelgisgæslunnar tekið eldsneyti á flugi yfir varðskipinu.

Nánari upplýsingar um varðskipið eru hér.