Vonskuveður og há sjávarstaða getur valdið vandræðum

  • TYR Braela ThorgeirBald

Veðurstofan bendir á að vonskuveður verður um norðanvert landið næstu daga. Búast má við norðanátt og snjókomu með vindhraða á bilinu 13-20 m/s. Þar sem norðanáttin er langvin má reikna með miklum áhlaðanda sjávar. Reikna má með að ölduhæð geti náð 12 metrum norður og austur af landinu og samfara hárri sjávarstöðu gæti það valdið vandræðum á hafnarsvæðum, einkum fyrir norðan. Eru menn hvattir til þess að huga að bátum í höfnum og hafa í huga að ísing getur myndast og hlaðist á báta á skömmum tíma.

Gert er ráð fyrir stormi (meira en 20 m/s) norðvestantil á landinu á morgun miðvikudag og víða um land annað kvöld. Eins gera spár ráð fyrir áframhaldandi stormi á fimmtudag og föstudag með ofankomu fyrir norðan. Sunnantil á landinu verður hvasst og víða mjög hvassar vindhviður við fjöll, en lengst af þurrt og ætti úrkoma þar að vera minniháttar. Frost lengst af 0 til 6 stig.

Mjög slæmt ferðaveður verður því næstu daga og ekki er búist við að veður fari að ganga niður fyrr en seint á laugardag og sunnudag.

Eins hvetur Veðurstofan húsdýraeigendur á að koma skepnum sínum í skjól ef kostur er.

Mynd Þorgeir Baldursson.