Bilun kom upp í þyrlu LHG á leið í útkall.

  • GNA1_haust2012

Fimmtudagur 25. apríl 2013

Bilun kom upp í Gná, þyrlu Landhelgisgæslunnar,  þegar hún var á leið í útkall kl. 14:37 í dag og varð tafarlaust að lenda þyrlunni. Að sögn flugstjóra gekk lending vel og eru allir heilir á húfi. Ingibjörg, björgunarskip SL á Höfn í Hornafirði var þá kallað út og sótti það um kl. 16:00 veikan skipverja um borð í fiskiskip sem staðsett var um 10 sjómílur frá landi. Kom björgunarskipið til hafnar um kl. 16:30 og flutti sjúkraflugvél manninn frá Höfn til Reykjavíkur. 

Þyrlunni var lent í nágrenni Hornafjarðar og kom þyrlan Syn um kl. 20:00 á staðinn með flugvirkja. Var þá ástand þyrlunnar metið en bilunin kom upp í gírkassa. Athugað verður hvort viðgerð verður framkvæmd á staðnum eða hvort verður nauðsynlegt að flytja hana í bíl til Reykjavíkur.

Er Landhelgisgæslan því nú aðeins með eina þyrlu, Syn til taks og er hún með takmarkaða björgunargetu. Líf er í reglubundinni skoðun og Gná biluð.  Landhelgisgæslan hefur ítrekað bent á þörfina fyrir endurnýjun þyrluflotans. Gná og Syn eru báðar leiguþyrlur, Syn verður skilað í haust en Gná á næsta ári. Stefnir þá allt í að aðeins verði  ein þyrla, Líf í rekstri Landhelgisgæslunnar.

Mynd af Gná: Gassi.