Sif skilar árangri í eftirliti á Miðjarðarhafi

  • SIF

Föstudagur 25. október 2013

Sif, flugvél Landhelgisgæslunnar hefur frá byrjun októbermánaðar aðstoðað landamærastofnun Evrópusambandsins (EU), Frontex við landamæraeftirlit á Miðjarðarhafi.

Á tímabilinu hefur áhöfn flugvélarinnar komið auga á flóttamannabáta með rúmlega hundrað manns innanborðs. Var þeim bjargað um borð í skip spænsku strandgæslunnar eða björgunarskip SASEMAR (Salvamento Marítimo). Einnig hefur spænski flotinn komið til aðstoðar þegar herskip þeirra voru nálægustu björgunareiningarnar. Frá byrjun aðgerðarinnar í vor hefur u.þ.b. 3100 flóttamönnum verið bjargað í leitar- og björgunaraðgerðum Frontex á sjó.

Í eftirlitsflugi Sifjar hefur áhöfnin einnig komið auga á grunsamlega báta hafa verið tilkynntir til stjórnstöðvar vegna gruns um fíkniefnasmygl.

Flugvélin hentar afar vel við eftirlitið og með tímanum eykst enn frekar reynsla og þekking starfsmanna sem skilar sér í enn betri árangri. Fimm manna áhöfn fylgir flugvélinni auk flugvirkja og starfsmanns í stjórnstöð Frontex. Upplýsingar frá flugvélinni eru sendar til stjórnstöðvanna og allar ákvarðanir varðandi eftirlitið eru teknar í samráði við þær.