Norðmenn, Svíar og Finnar koma til landsins vegna Iceland Air Meet 2014

  • F-4F_BaldurSveins-(3)

Miðvikudagur 15. janúar 2014

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný mánudaginn 27. janúar nk. með komu flugsveitar norska flughersins til landsins. Samhliða loftrýmisgæslunni munu flugsveitir frá Finnlandi og Svíþjóð verða á landinu við æfingar með Norðmönnum og Íslendingum. Það verkefni hefur vinnuheitið „Iceland Air Meet 2014“ (IAM2014) og hefst það föstudaginn 31. janúar með komu sænskra og finnskra flugsveita.   

Gert er ráð fyrir að samtals verði um að ræða 300 liðsmenn frá þjóðunum og um 20 flugvélar á landinu vegna æfingarinnar.  Finnar munu einnig leggja til tvær björgunarþyrlur sem geta verið til aðstoðar Landhelgisgæslunni í leitar og björgunarverkefnum þann tíma sem þær eru hér á landi auk þess sem þær munu sinna viðbragðstöðu vegna flugs og æfinga herflugvélanna.

Til viðbótar framangreindu taka þátt í verkefninu eldsneytisbirgðaflugvélar frá bandaríska og hollenska flughernum ásamt ratsjárflugvél Atlantshafsbandalagsins. 

Nánar er um að ræða:

  • Noregur verður með 6 F16 orrustuþotur og um 110 liðsmenn. 
  • Finnland verður með 5 F18 orrustuþotur, 2 NH-90 björgunarþyrlur og 60 liðsmenn.
  • Svíþjóð verður með 7 JAS-39 orrustuþotur, C-130 eldsneytisflugvél og 110 liðsmenn.
  • Holland verður með 1 KC10 eldsneytisbirgðaflugvél.
  • Bandaríkin verður með 1 KC135 eldsneytisbirgðaflugvél.
  • NATO verður með 1 ratsjárflugvél sem verður staðsett í Noregi.

Verkefnið verður með sama fyrirkomulagi og áður og í samræmi við samninga sem í gildi eru, því lýkur þann 21. febrúar.

Landhelgisgæslan annast rekstur varnar- öryggis- og upplýsingakerfa NATO hér á landi, rekstur öryggissvæða- og  mannvirkja og er í samskiptum við stofnanir Atlantshafsbandalagsins, aðildarþjóðirnar og Norðurlandaþjóðirnar og hinsvegar samskipti við þá aðila hér á landi sem að verkefninu koma. Í því felst m.a. framkvæmd loftrýmiseftirlits og loftrýmisgæslu í stjórnstöð NATO á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli (Control and Reporting Centre). Verkefnið er hluti af samþættu verkefni NATO, „NATO intergrated air defence system - "NATINADS“. Fulltrúar þjóðanna sem eru við loftrýmisgæslu eru í stjórnstöðinni ásamt starfsmönnum Landhelgisgæslunnar. Landhelgisgæslan annast líka það sem snýr að gistiríkjastuðningi, það felst m.a. í að veita nauðsynlega borgaralega aðstoð,  þjónustu og aðstöðu fyrir mannafla og búnað.

Hér á heimasíðunni eru nánari upplýsingar.

Koma Svía og Finna til Íslands á sér bakgrunn í skýrslu Thorvalds Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra Noregs, um norrænt samstarf í utanríkis- og varnarmálum sem hann afhenti utanríkisráðherrum Norðurlandanna árið 2009.