Landhelgisgæslan kallar eftirlitsflugvélina TF-SIF heim vegna aðstæðna í norðanverðum Vatnajökli

Vegna aðstæðna í norðanverðum Vatnajökli hefur Landhelgisgæslan ákveðið að kalla TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar heim frá útlöndum en hún er nú við landamæragæslu í sunnanverðu Miðjarðarhafi.  Flugvélin er væntanleg til landsins eftir hádegi á morgun, þriðjudag.  TF-SIF er búin ratsjám, myndavélum og öðrum tækjabúnaði sem hentar mjög vel til eftirlits með gosvirkni og hefur sá búnaður sannað gildi sitt við eldsumbrot.