TF-SIF á leið heim - búnaður vélarinnar afar gagnlegur við mat á aðstæðum

Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF er nú á leið heim frá Sikiley á Ítalíu.  Vélin hefur viðkomu til eldsneytistöku í Bretlandi og er væntanleg til landsins seinnipartinn í dag.

TF-SIF er búin ratsjám sem geta kortlagt yfirborð gosstöðvanna og jökulsins og gert vísindamönnum kleift að fylgjast með breytingum á yfirborði jökulsins og hraunflæði óháð skýjafari og birtu.  Búnaðurinn getur einnig kortlagt breytingar á mannvirkjum, svo sem vegum, brúm og rafmagnslínum sem hugsanlega geta orðið fyrir skemmdum vegna flóða.  Þá gerir vélin vísindamönnum unnt að fylgjast grannt með dreifingu og hæð öskustróks.  Flugvélin er einnig búin hitamyndavél sem gagnast við að meta ástandið á svæðinu og þróun mála.

Flugvél Landhelgisgæslunnar reyndist mjög vel í Eyjafjallagosinu árið 2010 og hefur meðfylgjandi radarmynd tekin af gosstöðvunum í Eyjafjallajökli farið víða um heim og vakið athygli.