Yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins í Evrópu heimsótti Landhelgisgæsluna

Miðvikudagur 10. september 2014

Yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins(NATO) í Evrópu, SACEUR Philip M. Breedlove, herforingi kom í dag ásamt fylgdarliði og fulltrúum utanríkisráðuneytisins í heimsókn til Landhelgisgæslunnar á Öryggissvæðið í Keflavík. Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri lofthelgis- og öryggismálasviðs og Auðunn F. Kristinsson, starfandi framkvæmdastjóri aðgerðasviðs tóku á móti honum ásamt samstarfsmönnum.

Í heimsókninni var kynnt starfsemi Landhelgisgæslunnar, stjórnstöð NATO og LHG í Keflavík og helstu húsakynni sem notuð eru af þjóðum NATO sem koma til æfinga hér á landi og:eða sinna loftrýmisgæslu. Kom Breedlove til Landhelgisgæslunnar að loknum fundi með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra og Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra. Hélt hann af landi brott að lokinni heimsókn til Landhelgisgæslunnar.

Sjá frétt utanríkisráðuneytisins af heimsókninni. 

Sjá frétt forsætisráðuneytisins.


Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri lofthelgis- og öryggismálasviðs LHG, Arnór Sigurjónsson, skrifstofustjóri öryggis- og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, SACEUR Philip M. Breedlove, Auðunn F. Kristinsson, starfandi framkv.stjóri aðgerðasviðs LHG og Friðrik Jónsson, varnarmálafulltrúi Íslands hjá NATO.