Varðskipið Týr kominn til hafnar á Íslandi eftir verkefni við Svalbarða

Þriðjudagur 23. september 2014

Varðskipið Týr kom til Akureyrar síðdegis í dag eftir að hafa verið frá byrjun maí í leiguverkefni við Svalbarða þar sem skipið var notað til eftirlits- og björgunarstarfa sem og almennra löggæslu- og þjónustustarfa fyrir Sýslumanninn á Svalbarða.  Tveir starfsmenn Landhelgisgæslunnar voru í áhöfn Týs hverju sinni meðan á verkefninu stóð og var mikil ánægja með frammistöðu þeirra.

Landhelgisgæslan gerði samning við Fáfni Offshore hf um verkefnið en nýtt skip Fáfnis, Polarsyssel var afhent Sýslumanninum á Svalbarða í síðastliðinni viku. Fyrirtækið gerði samning við Sýslumanninn á Svalbarða um gæsluverkefni í kringum eyjarnar sex mánuði í senn næstu tíu árin og mun nýta hið nýja skip til þeirra verka. Skipið er fyrsta sérhæfða skip Íslendinga til að þjónusta olíuborpalla og er sérstaklega hannað til að sinna verkefnum á norðlægum slóðum.  Fyrirtækið Fáfnir Offshore hefur haslað sér völl á sviði þjónustu við olíurannsóknir og olíuvinnslu á Norðurslóðum og hyggst enn frekar færa út kvíarnar á þeim vettvangi. 

Landhelgisgæslan hefur beint og óbeint sinnt verkefnum fyrir Sýslumanninn á Svalbarða gegnum árin en mikið samstarf hefur verið milli þyrlusveitar Sýslumannsins og þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.  Landhelgisgæslan telur afar mikilvægt að efla samstarf leitar- og björgunaraðila á Norður-Atlantshafi og hefur verkefnið eflt enn frekar samstarf milli Svalbarða og Íslands um öryggismál á Norðurslóðum.

Rekstraráætlanir Landhelgisgæslunnar fyrir árið 2014 gera aðeins ráð fyrir einu varðskipi á sjó í einu og hafa tekjur vegna verkefnissins gert Landhelgisgæslunni kleift að sinna betur björgunargetu við Ísland. Nú er verkefninu lokið og ekkert fast í hendi með frekari verkefni á næstunni. 

Myndir Þorgeir Baldursson.






Nýtt skip Fáfnir Offshore við hlið Týs. Mynd frá Fáfni Offshore.


Týr við Svalbarða. Mynd frá áhöfn Týs.