Týr lagði úr höfn áleiðis í Miðjarðarhaf

Fimmtudagur 20. nóvember 2014

Varðskipið Týr lagði úr Reykjavíkurhöfn rétt eftir hádegi í dag áleiðis í Miðjarðarhaf, suður af Ítalíu, þar sem skipið mun næstu tvo mánuði sinna landamæragæslu fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Ráðgert er að varðskipið verði á þeim slóðum út janúar. 

Beiðni um aðstoð varðskipsins barst í október sl. og var strax hafist handa við undirbúning sem hefur gengið vel með samstilltu átaki starfsmanna.  Átján manna áhöfn er um borð í skipinu en nokkrar breytingar verða í áhöfninni á tímabilinu. Einnig verður starfsmaður Landhelgisgæslunnar (LHG) staðsettur í stjórnstöð Frontex og hefur hann það hlutverk að vera milliliður LHG og samstarfsaðila á svæðinu.  

Hefst nú vinna við að undirbúa brottför TF-SIF flugvélar LHG en hún heldur til Sikileyjar nú í lok nóvember og er ráðgert að hún verði meira og minna við landamæragæslu út janúar með hléum.  Nýverið var yfir 1.800 manns bjargað af þessu svæði, meðal annars um borð í skip Portúgala og Ítala og má því gera ráð fyrir að þessi verkefni hjá Tý og Sif, verði krefjandi og lærdómsrík.


Hluti áhafnarinnar stillti sér upp fyrir brottför.


Lagt úr höfn. Mynd JPA.



Mynd JPA.


Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs kveður


Guðrún H. Einarsdóttir, Magnús Pálmar, stýrimaður og Einar H. Valsson, skipherra. Mynd JPA.


Viggó M. Sigurðsson, yfirstýrimaður Mynd JPA.


Valgeir Baldursson og Rögnvaldur Ólafsson


Spjallað fyrir brottför


Sólveig Helga Hjaltadóttir, háseti. Mynd JPA.


Haukur D. Grímsson, smyrjari og Rafn S. Sigurðsson, háseti.


Mynd JPA.


Áhöfnin á Þór kom til að kveðja. 
Jóhann Gunnar Arnarsson bryti, Gísli Valur Arnarsson og Elvar Steinn Þorvaldsson, stýrimenn.
Mynd JPA.

Myndir Jón Páll Ásgeirsson og Hrafnhildur B. Stefánsdóttir.