Hættuleg merkjablys

Þriðjudagur 9. ágúst 2005.

Á undanförnum vikum hafa sprengjudeild Landhelgisgæslunnar borist tilkynningar um merkjablys eða svokallaða markera sem hafa verið að finnast víða á Snæfellsnesi og á Reykjanesi.

 

Merkjablys eru mikið eru notuð af herjum og björgunaraðilum til sjós, bæði til æfinga og við björgun. Þeir innihalda efni sem heitir fosfór sem getur verið hættulegt vegna sjálfsíkveikju sem verður þegar efnið þornar og kemst í snertingu við súrefni, hvort sem blysið hefur verið notað eða ekki.

 

Fosfór brennur  hratt og getur valdið miklum eldsvoða sé það geymt nálægt eldfimum efnum og gefur jafnframt frá sér eitraðan reyk sem er mjög hættulegur.  Finnist svona blys á víðavangi ber að merkja staðinn og tilkynna það til Landhelgisgæslunnar eða lögreglu.

 

Ekki skal snerta blysið heldur reyna að lesa merkingar sem kunna að vera á því og taka niður upplýsingar um helstu mál, lengd og breidd, ef mögulegt er.  Ef viðkomandi hefur myndavél í fórum sínum er gagnlegt að fá myndir sendar til sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar.

 

Ef blysið finnst úti á sjó ber að geyma það utandyra fjarri öllum eldfimum efnum. Undir engum kringumstæðum skal geyma þessi blys innandyra.

 

Frekari upplýsingar veitir sprengjudeild Landhelgisgæslunnar í síma 5452100.  Einnig eru upplýsingar undir fyrirsögninni sprengjudeild á heimasíðu Landhelgisgæslunnar á slóðinni: http://www.lhg.is


Marvin Ingólfsson

ftr. sprengjudeild

 

 

Bandarísk Mark 6 og Mark 25 merkjablys sem fundust á Haffjarðareyju við Snæfellsnes síðastliðinn sunnudag og var svo eytt af sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar.