Þyrla Landhelgisgæslunnar í sjúkraflug á Neskaupstað

Í dag kl 17:38 fór þyrla Landhelgisgæslunnar frá Reykjavík áleiðis á Neskaupstað til að sækja nýbura sem koma þarf á sjúkrahús í Reykjavík. Ekki er fært fyrir sjúkraflugvél vegna aðstæðna. Flogið verður með suðurströndinni með viðkomu á Höfn til eldsneytistöku á báðum leiðum. Ljóst er að um 6-7 tíma flug er að ræða. Með í för auk þyrlulæknis eru sérhæfður læknir og hjúkrunarfræðingur.