Sprengiefnistunna frá stríðsárunum kom í dragnót skipsins Aðalbjargar RE-5
Miðvikudagur 22. júní 2005.
Skipstjórinn á Aðalbjörgu RE-5 hafði samband við Landhelgisgæsluna í morgun og óskaði eftir aðstoð vegna torkennilegs hlutar sem hann hafði fengið í dragnót. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fengu far með björgunarbát björgunarsveitarinnar Mannbjargar út í skipið sem var statt út af Þorlákshöfn og kom þá í ljós að þetta var sprengiefnistunna úr tundurdufli frá stríðsárunum.
Sprengjusérfræðingarnir fjarlægðu hvellhettu og forsprengju úr tunnunni og síðan var farið í land með hana og sprengiefnið tekið frá borði. Nú um kl. 16:30 eru sprengjusérfræðingarnir að fara að eyða sprengiefninu í sandgryfjum milli Þorlákshafnar og Eyrarbakka.
upplýsingaftr.